
Við erum eina fyrirtækið í vetnisgeiranum sem getur státað af því að hafa haldbæra reynslu af því að hefja rekstur á vetnisvögnum, vetnisstöð, staðföstum efnarafala, hafa reynslu af samvinnu innan evrópusamstarfsverkefna og stunda rannsóknir tengdar samfélaginu. Ráðgjafaþátturinn er því byggður á reynslu.
Íslensk NýOrka er fyrirtæki sem eingöngu safnar og vinnur úr gögnum frá þróunar- og tilraunaverkefnum með vetni. Jafnframt er fyrirtækið þátttakandi í greinaskrifum og samantektum sem ekki krefjast grunnrannsókna. Verkefnin miða öll að því að fylgja eftir vinnslu, meðhöndlun og prófun vetnis sem nýtt er sem eldsneyti og dregur úr hættu á loftslagsbreytingum.
Starfsemi Íslenskrar NýOrku er fólgin í: