
Hér getur að líta nokkra af þeim vetnisrafbílum sem teknir voru í notkun hér á landi í janúar 2010. Brimborg setti upplýsingar og skreytingar á sinn silfurlita Ford Focus í samræmi við fyrirtækjastefnu um Visthæf skref. Hvít filma sýnir skuggamynd af borginni og á hliðunum eru upplýsingar sem aðrir bílstjórar geta lesið ef þeir eru að bíða á rauðu ljósi til dæmis.
Skeljungur vekur athygli á því að vetnið verður að vatni við notkun. Á stuðaranum stendur: Gamla góða gufan. Píla bendir á útblástursopið. Einnig stendur á nokkrum stöðum CO2 með yfirstrikun. Þessi á eftir að verða áberandi í umferðinni. Bílarnir eru ýmist hvítir eða silfurlitir og er þess vegna auðvelt að skreyta þá með skærum litum. Við erum hreykin af því hve merkingarnar eru frumlegar og málstað okkar til framdráttar. Íslensk NýOrka er hæstánægð með samvinnuna við Brimborg sem tekur rösklegt skref í þá átt að minnka útblástur frá umferð í Reykjavik.
Ford Edge er stærri gerð af vetnis-tvinnbíl en Ford Focus. Sniðið er jepplingur , rúmgóður og afar hljóðlátur. Rafhlöðuna er hægt að endurhlaða með tengli við 110/220VAC til dæmis yfir nótt, en á lengri vegalengdum kemur vetnið til skjalanna. Drægnin er 200 – 320 mílur á tanki og fullri rafhlöðu, hún nýtist ein fyrstu 25mílurnar á 85m/h hraða en síðan endurhleiður rafalinn hana á ferð. Bílinn er hægt að fá með ýmist 350bara tanki eða 700 bara tanki. Þetta er heppileg bland
Það sem greinir Ford Edge frá öðrum nýtæknibílum er að þó svo að vetni sé orkugjafinn bílsins þá er rafgeymirinn sítengdur við drifið. Það þýðir að efnarafallinn fer einungis af stað til að bæta rafmagni inn á kerfið þegar hleðslan fellur niður fyrir Liþíum rafhlaðan sem nýtist við aksturinn en rafalinn tekur af sveiflurnar í hleðslu hennar. Á öðrum faratækjum er þessu öfugt háttað. Rafgeymum fer betur að vinna á nærri fullri hleðslu og það fer ekki vel með hann ef hleðslan er látin tæmast áður en endurhleðsla er hafin. Þetta kemur einstaklega vel út í nýtni orkunnar og líftíma tækjanna.
Tækniupplýsingar:
Tengilhleðsla: 25 mílur á rafhlöðu
Útblásturslaus orkuvinnsla í rafala
225 mílna drægni á með hvoru tveggja ef þrýstinguer er 350 bör
2 rafhreyflar hvor á sínum öxli, 65kW hvor
Efnarafali: 35kW
Hreyfill; 130KW Li-jóna geymir
Tankur: 4.5kg H2 sem tekur 5mín að fylla og er undir bílnum svo að rými í skotti er ósnert
Þyngd bíls: 2450kg
5 farþegar
Nýtni ( samkvæmt EPA) 41mpg