A-class vetnisrafbill

A-class frá Daimler

    

A-klassinn er klassískt módel frá Daimler. 4-manna fjölskyldubíll með takmörkuðu skottrými en rúmgóður í sætum.  Gólfið liggur lágt og er þyngdarpunkutinn neðarlega svo að bíllinn liggur eins og klessa á götunni og er afar skemmtilegur í akstri, snöggur upp, stöðugur og lipur Sofandi lögregluþjónar eru hins vegar ekki mjög vinsæll vegatálmi,

Þeir bílar sem hafa verið hér á landi í tilraunaakstri komu til landsins haustið 2007 en hafa farið víða um heim til aðkynna vetnisbíla Daimlers.  þeir voru hér til tilraunaaksturs til ársins 2009 og var reglulega send gögn um ástand og notkun í gegn um tölvulesara beint til Daimler. Þessir tveir bílar hafa verið í notkun mest hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun og var afar vinsæll meðal ökumanna.

 




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15