Fræðsluefni

Frábær kennsluvefur

Frábær kennsluvefur um vetni hefur verið settur upp á vegum Valdimars G Valdimarssonar sem löngum hefur verið seigur við að fræða um nýja orkutækni og vetni. Vetni


Bæklingur um samgöngustefnu
Íslensk NýOrka hefur þýtt og staðfært bækling um samgöngustefnu fyrirtækja. Þessi bæklingur var fyrst sendur til 7000 fyrirtækja á landinu með viðskiptablaðinu og síðar sendur umhverfisnefndum allra sveitarfélaga. Það er von okkar að hann nýtist fólki sem vill draga úr koltvísýringsútblæstri frá flutningum vegna starfsemi fyrirtækja, en mikið er rætt um það hvernig almenningur getur lagað sig að breyttum áherslum. Almenningssamgöngur, hjól og gönguferðir geta dregið mjög úr útblæstri ef fjöldinn ákveður að nota slíkan ferðamáta. Skoðið bæklinginn og hefjið síðan skipulagninguna. það eru til margvíslegar leiðir til að takast á við aðsteðjandi vá. Vistvæn samgöngustefna fyrir fyrirtæki og sveitarfélög.

Efni fyrir skóla

Vetni - orkuberinn hreini fjallar um aðferðir við að vinna og nýta vetni. Þetta leshefti er einkum ætlað kennurum og nemendum sem vilja skoða vetni í samhengi við efnafræði, eðlisfræði, náttúrufræði og orkumál. Gjörið svo vel og notið að vild, en sendið athugasemdir við efnið, spurningar nú eða viðbætur til Maríu Maack!

Litli vetnisvísirinn lýsir eðlis- og efniseiginleikum vetnis og inniheldur ýmsar fleiri upplýsingar sem tengjast notkun þess sem orkubera.

Vetni hreinn orkuberi - hreyfimynd sem sýnir tengsl vetnis og vatns, er komin á skólavefinn. Diskar með efninu voru sendir 2003 til allra skóla á landinu. Árið 2006 var efnið gefið til skólavefsiins, sem bauðst til að setja það upp og auka þannig aðgang skóla, kennara og barna að efninu.


Orðalisti
Við viljum benda á að í heftinu Vetni- orkuberinn hreini er mikið af íslenskum þýðingum tækniorða er varða venti. Þar eru ensk hugtök skýrð og nefnd í samráði við orðanefnd tækni og rafmagnsfræðinga. Við látum það nægja í bili. Sendið okkur endilega ábendingar um góð nýyrði.

Greinar sem hafa birst í tímaritum

Hér má finna ýmsar greinar sem starfsmenn og aðrir aðilar tengdir Íslenskri NýOrku hafa ritað á íslensku. Greinare sem við mælum með á ensku síðunni eru einnig auðlesnar.

Grein um vetnisnotkun á báta eftir Hjalta Pál Ingólfsson

Viðtal við  Maríu Maack um vetnis- og rafbíla  


Útkýringar á vetnisstöðinni

Þessi litli bæklingur inniheldur myndir og stuttar útskýringar af vetnisstöðinni og kerfinu í strætisvögnunum sem voru í notkun. Betri útskýringar eru til dæmis við flipana Vetnisstöðvar, Vetnisbílar og Vetynisbátar.

Vistvæn ökutækjastefna geymir hugmyndir um það hvernig draga má úr útblæstri frá umferð og þótt bæklingnum sé beint til fyrirtækja og sveitarfélaga getur hann einnig hjálpað heimilum til að endurskoða ferðamynstur sín.

Síðan skal bent á fleiri bæklinga og fréttabréf á ensku síðunni okkar.,, News letters'' eða fréttabréf sem eru auðlesin, myndskreytt og skýra frá því sem helst hefur borið á góma frá því árið 2001. 

Útgefið efni er einnig oftast auðlesið þar sem stefna okkar er sú að upplýsa almenning um það sem við erum að gera.


Leshefti um vetni
Hér geta kennarar og aðrir áhugsamir fundið lesefni á íslensku. Í hlekknum hangir hefti sem þið getið prentað út og gluggað í. Einhvern undirstöðuskilning þurfa lesendur að hafa í efnafræði og eðlisfræði til að geta tileinkað sér efnið en áhugi dugir yfirleitt. Efnið er þó ekki eins flókið og ferlarnir sem sjást hér til hliðar gefa til kynna og sýna hvernig þrýstingur vex í geymsluhylkjunum þegar vetninu er þjappað í þau. Góða skemmtun!



Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15