
Leiðarljós fyrirtækisins er að standa fyrir verkefnum til að prófa nýja vetnistækni og stuðla að notkun vetnis í íslensku samfélagi svo framarlega sem samtök um það nást við nauðsynlega samstarfsaðlia. Verði vetni tekið upp sem almennt eldsneyti á landinu er augljóst að almenningur, ríkisstjórn, embættismenn, sveitarfélög og sérfræðingar þurfa að koma að málinu af heilum hug. Notkun vetnis útilokar hins vegar alls ekki notkun annarra orkubera svo sem metans, etanóls eða rafhlöðubíla, en vetni er hægt að vinna í stórum stíl úr vatni og rafmagni. Vetnistækni er í mikilli þróun um allan heim og aðstæður á Íslandi ákjósanlegar fyrir tilraunir og prófanir.
Erlendir eignaraðilar eru:
Daimler
Hydro,
Shell Hydrogen.
Þau íslensku fyrirtæki sem standa að Vistorku og eiga meirihluta í Íslenskri NýOrku eru eftirfarandi:
Orkuveita Reykjavíkur
Landsvirkjun
Háskóli Íslands
Iðntæknistofnun
Hitaveita Suðurnesja
Aflvaki og Iðnaðarráðuneytið
Reykjavíkurborg styrkti framhaldsverkefnið Hy-FLEET: CUTE til að reka vetnisvagnana út árið 2006.
www.visitreykjavik.is
www.visiticeland.com