Allar fréttir
Lilja
Vetnisstöð norðan heimskautsbaugsins

Í norður Finnlandi, 150 metra norðan heimskautsbaugsins hjá „Arctic Driving Center“ opnaði nýlega vetnisstöð. Stöðin er með 700 bara þrýsting og fyllir ökutækið á 3 mínútum. Þessi stöð er byggð fyrir prófun vetnisrafbíla við mjög kaldar aðstæður, en meðalhiti á svæðinu er -15°C og fer hitinn allt niðrí -45°C.

Sjá nánar hér.


Vetnisrafbílar - geta skapað störf

Í fréttatilkynningu frá H2 Logic kemur fram að við innleiðingu vetnisrafbíla gætu skapast allt að 6.000 störf í Danmörku. Lagt er til að stofnaður verði innviðasjóður til niðurgreiðslu á uppbyggingu innviða, líkt og hefur áður verið gert fyrir metangas í Danmörku.

Í opnu bréfi frá fimm alþjóðlegum bílaframleiðendum (Daimler, Toyota, Hyundai, Opel/GM og Nissan) sem sent var yfirvöldum í Danmörku, hvetja bílaframleiðendurnir yfirvöld í Danmörku til að styðja við innleiðingu vetnis.

Sjá nánar hér.

Hér á landi væri einnig hægt að fara svipaða leið og Danirnir stinga uppá, en slíkar tillögur voru í nýlegri aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar - sem lögð verður fram á þinginu á næstu dögum.


Lilja
Ný skýrsla: Hvað þarf til að koma á vetnissamfélagi í Danmörku.

Í nýrri danskri skýrslu, gefin út af Hydrogen Link, kemur fram að vetni muni kosta hvern Dana eina flösku af rauðvíni á ári. Skýrsluhöfundar setja fram hugmyndir um opinbera stjórnarstefnu sem miðar að því að nýta vetni í samgöngur.

Spáð er að það muni kosta hvern Dana 46 danskar krónur á ári að styðja við vetnisvæðingu samgangna um alla Danmörku til ársins 2025. Eftir það á tæknin að geta staðið á eigin fótum og er talið að vetnisknúnir bílar verði helmingur alls bílaflotans árið 2050. Niðurstöður skýrslunnar benda á leiðir til að fjármagna breytinguna með afgjaldi í innviða-sjóð.

Skýrsluna og samantektir eru hér.

Maria
Norræna vetnis- og efnaraflaráðstefnan

l-itill_rafgreinirNorræna ráðstefnan um efnarafla og vetni verður haldin 25 - 26. október 2011 í Malmö, Svíþjóð. Þar koma fram margir fyrirlesarar sem ýmist hafa gert prófanir með nýja efnahvata og tækni í efnaröflum og rafgreinum, fyrirtæki sem sýna nýja markaðsvörur sem nýta vetni og enn aðrir sem gefa yfirsýn um notkun vetnis ti að stýra álagi á rafdreifikerfum. Skráning er í gangi núna og er allar upplýsingar að finna hérna.   Ráðstefnan er ætluð jafnt áhugamönnum sem lengra komnum, sveitarstjórnum, fyrirtækjum, iðnaðarmönnum og kennurum. Efnið sem verður kynnt fjallar um smæstu sameindir jafnt og samféagslegri notkun á hreinni orku, samgöngur og tæki sem eru að koma á markað. Evrópsk samstarfsverkefni sem teigja anga sína norður á bóginn, eins og nýtt strætisvagnaverkefni í Oslo og vetnislyftarverkefnið verður einnig kynnt.

Frekari upplýsingar eru í viðhenginu sem kemur upp þegar smellt er á ´HÉRNA' AÐ OFAN,   


Lilja
Hyundai Tucson ix35 á Íslandi

huyndai1Fyrr í júlímánuði kom til landsins splunkunýr vetnisrafbíll af gerðinni Hyundai Tucson ix35. Prufuakstur bílsins á Íslandi er hluti samkomulags sem var undirritað af skandinavísku vetnisvega-samtökunum (SHHP) og Íslenskri NýOrku í janúar síðastliðnum. Samkomulagið er við kóreska bílaframleiðandann Hyundai.Kia um að taka vetnisrafbíla (FCEV) í tilraunaakstur á Norðurlöndunum og er kynning bílsins á Íslandi hluti þess samkomulags. Bíllinn verður hérlendis það sem eftirlifir sumars. 

Áfylling bílsins tekur einungis um þrjár mínútur og hefur hann um 600 km drægi á fullum tanki. Bíllinn er í fullri stærð og kemst jafnlangt á áfyllingunni og við erum vön af bensínbílum. Að auki eru aksturseiginleikarnir ákaflega heillandi og búnaður bílsins allur hinn glæsilegasti. Fólki verður innan skamms gefinn kostur á að skoða bílinn og prófa hann en nánar um það síðar.

Hér má sjá myndband af bílnum þegar honum var keyrt þvert yfir Danmörku í Maí.

Maria
Hyundai.KIA vetnisrafbílar eru komnir til Norðurlanda.

Fréttatilkynning | Kaupmannahöfn 12. maí 2011

plakat_styttraTveir vetnisrafbílar af nýjustu gerð frá Hyundai.KIA voru kynntir í Kaupmannahöfn í morgun og er það frumsýning þeirra í Evrópu. Kynningin markar upphaf tilraunaksturs þeirra og markaðssetningu. Jafnframt hafa Norðurlöndin hug á að halda áfram samstarfi um vetnisverkefni. Borgarstjórar höfuðborga Norðurlandanna funda nú í Kaupmannahöfn og voru viðstaddir móttökurnar sem þarlend borgarstjórn stóð fyrir. Fyrr um morguninn fékk forsætisráðherra Danmerkur að reynsluaka einum bíl með kóreska forsetanum. Undirrituð var viljayfirlýsing á milli Hyundai.KIA, Kaupmannahafnar og danska vetnisfélagsins en vetnisfyrirtæki og -félög á hinum Norðurlöndunum eiga einnig aðild að samkomulaginu.

 

 

Hér er upptaka að atburðinum: Frumsýning Huyndai.Kia vetnisrafbíla

 

Í janúar síðastliðnum undirrituðu skandinavíska vetnisvega-samtökin og Íslensk NýOrka samkomulag við kóreska bílaframleiðandann Hyundai.Kia um að taka vetnisrafbíla (FCEV) í tilraunaakstur í Skandinavíu og er þessi kynning fyrsta birtingarmynd þess samkomulags Atburðurinn fór fram samhliða fundi borgarstjóra Norðurlanda um grænan hagvöxt. Borgirnar leggja sig allar fram við að koma nýju visthæfu eldsneyti í notkun, m.a. vetni. Bílarnir verða notaðir og kynntir á ýmsum atburðum á næstunni til að undirstrika stefnu Norðurlandanna í að koma hreinni tækni á framfæri. Þessi farartæki standa jafnfætis bensínbílum hvað varðar þægindi og er Hyundai.KIA mikið í mun að koma til móts við Norðulöndin og þeirra kröfur í umhverfismálum.  

 

Leiðandi bílafraleiðendur stefna enn að því að setja vetnisrafbíla í almenna sölu árið 2015 en tæknin er enn að þróast í átt að hagkvæmni og þægindum. Drægnin hefur aukist og áfylling bílanna er fljótleg og örugg. Umhverfislegur ávinningur þess að nota vetnistæknina er hreinn útblástur (aðeins vatnsgufa) einnig er hægt að nota endurnýjanlega orku og vatn við vinnslu vetnis. Vert er að huga að byggingu fleiri vetnisstöðva og er skipulag borgarumhverfisins því mikilvægur samstarfsaðili í þessum efnum.

 

Bo Asmus Kjeldgaard yfirmaður tækni– og umhverfissviðs Kaupmannahafnar sagði í ræðu sinni: “Með þessu samkomulagi við Hyundai•Kia tökum við mikilvægt skref í átt að visthæfum samgöngum. Við viljum nýta Kaupmannahöfn sem tilraunasvæði fyrir hreina tækni og vera með þeim fyrstu til að koma vetnisfarartækjum í almenna umferð eftir 2015. Við væntum þess að samvinnan um tilraunaaksturinn geti gefið upplýsingar og nýjar hugmyndir um notkun vetnistækni því bæði Danir og Kóreubúar standa framarlega á þessu sviði. ”(Myndir: www.hydrogenlink.net og : www.scandinavianhydrogen.org )


Maria
Vetnisrafbíll þvert yfir Danmörk

hyundai-brint-bil-paa-markedetEftir þriggja mínútna áfyllingu á vetnisstöð komst fyrsti rafbíllinn þvert yfir Danmörk (340 km) að austurjaðri  Kaupmannahafnar eftir 4 tíma akstur, ennþá með afgang í tankinum. Bíllinn er  af gerðinni Hyundai Tucson ix35 vetnisrafbíll. Bíllinn er í fullri stærð og kemst jafnlagnt á áfyllingunni og við erum vön af bensínbílum. Þessi jómfrúarferð var farin í tilefni þess að í dag afhendir Hyundai.Kia fyrstu vetnisrafbílana sína í Evrópu og að undirritað verður samkomulag á milli Kóreu og Danmerkur / Norðurlandanna, þar á meðal Íslands, um samstarf í vetnismálum.

 

Myndin er frá Hydrogen Link, Danmörku.

 

 

 

Lilja
Hyundai kynnir nýjan vetnisrafbíl

Hyundai kynnti nýjan vetnisrafbíl hugmynda-bíl sem ber nafnið Blue2 (lesist 'blue square') á bílasýningu í Seoul, Suður Kóreu.

Kraftur efnarafals bílsins eru 90 kW (1,65 kW/L) en nánari upplýsingar um bílinn má nálgast hér. (á ensku)


Lilja
Vetnis útgáfa af Think City bílum frumsýndir í Kjeller, Noregi

Fjórir Think City vetnisrafbílar voru frumsýndir í vikunni af tækniþróunarsjóði Noregs og voru aðilar frá samgöngu- og samskiptaráði norska þingsins fyrstir til að prófa ökutækin.

Bílarnir verða í bifreiðaflota nokkurra fyrirtækja þar sem starfsfólk hefur aðgang að bílunum á Lillestrøm svæðinu.

Think hefur staðið að þróun vetnis-útgáfu þessara bíla síðastliðin ár, með stuðningi frá rannsóknarsjóðnum. Bílarnir (Think H2EV Gen 2) eru með um 280 km drægi, 10 Kw efnarafal og vetnistank með 700 bara þrýstingi.

Verkefnið er styrkt af Norska tækniþróunarsjóðnum, ESB-verkefninu H2Move og Transnova

Fyrir frekari upplýsingar, sjá fréttatilkynninguna hér (aðeins á norsku)


Samanburður á notkun lífeldsneytis og vetnis í akstri

dsc01943Þjóðverjar hafa lag á að setja hlutina í samhengi. í Nýjasta fréttbréfi DWV eða vetnis- og efnarafasamtökunum (www.dwv-info.de) er litið til þess að í gildi eru reglur um lífeldsneyti (E 10) sem kveður á um að bensín skuli vera blandað upp að 10% með etanóli af lífrænum uppruna. Þá má gera ráð fyrir að í hverjum 50 lítra tanki sé að janfaði 5 lítrar af etanóli. Ef þetta eldsneyti er gert úr hveitikorni, þá þarf til framleiðslunnar 12,5 kg af hveiti sem koma af um það bil 20 fermetra akri. Þetta jafngildir því að brennt væri hveiti á 100 km akstri sem myndi nægja í 1,5 kg af brauði. Og í þessu dæmi væri auðvitað ennþá meirihluti orkunnar upprunnin í jarðefnaeldsneyti, eða 93% þar sem notast er við E10 eldnseytis í ræktun hveitisins.

Áfram er prjónað við dæmið og því haldið fram að hreinasta eldsneyti sem hægt er nú að fá á markaði í Þýskalandi væri vetni gert með rafmangi frá vindmyllum á þeim tíma sem eftirspurn eftir rafmagni er ekki mikil. [Innskot N'yOrku: Nú er verið að gera tilraunir með að nýta umframorku til að rafgreina vetni á þeim tíma sem vindmyllur snúast en ekki er mikil eftirspurn eftir rafmangi, til dæmis að nóttu til. Þess háttar vetni er hins vegar afar torfengið!] Vindmylla í slíku dæmi þarf 2,9 fernetra flöt til að standa á. Efnarafalabíll færi jafnframt 1,8 sinnum lengra á sama orkumangi og bensínbíll.

Hins vegar er lang-minnsti hluti vetnis sem fer á bíla gerður með rafgreiningu eins og hér er lýst. Notast er víðast hvar í heiminum við jarðgas sem hitað er með vantsgufu. Meira að segja þessi aðferð við að vinna vetni, dregur meira úr CO2 útblæstri en E10 reglugerðin segir til um.


María
Sprengingar af völdum vetnis í Japan

japanese-flag-640Okkur hafa borist skýringar frá þýsku vetnissamtökunum á fréttum frá Japan þar sem minnst er á að vetnið hvellspringur. Vaknað hafa spurningar um hlutverk vetnis í kjarnorkuverinu því ekki er vaninn að vetni komi við sögu í slíkri orkuvinnslu. En sérstæðar aðstæður hafa nú skapast vegna klofnunar vatns við ofurhita en það er utan við kjarnakljúfinn.  Hráefnið fyrir orkluverið er geymt í Zirkonium hylkjum og er þessi geymsla kæld með vatni. Þegar síðan vatnskælingin bregst hitna hylkin gífurlega (upp í um það bil 1000°C).

Zirkonium oxast við þessi skilyrði og þar sem ekki er andrúmsloft kringum hylkin rífur málurinn súrefnið úr kælivatninu. Súrefið binst málminum. Við það losnar vetni sem safnast fyrir í geymslunni og hitinn heldur áfram að stíga þannig að geymslan fer að gefa eftir og lofttegundirnar að þrýstast eða smjúga út og það getur verið vetni blandað að einhverju leyti með vatnsgufu. Þar sem vetnið safnast saman getur kviknað í því þegar það blandast andrúmsloftinu við þessar aðstæður. Vaninn er að losa um lofttegundir á skipulegan hátt til að koma í veg fyrir þrýsiting en líklegast er að kvikni í ef vetnið er um 23% af blöndunni en þetta er einnig háð því hve hátt hlutfallið millli vatnsgufu og vetnis er hvort komi kvellur. Þetta eru afar sérstakar aðstæður sem verða til við ofhitnun í kjarnorkuverinu utan við kjarnaklúfin og er alls ekkert skylt vetnissprengjum.

 

Maria
Fyrsti THINK rafhleðslubíllinn í umferð á Íslandi
 
afhendingBenjamín og Eygló tóku við lyklinum að fyrsta THINK rafhleðslubílnum 2.mars. Það er Íslensk NýOrka sem gekkst fyrir að fá rafbíl af þessu tagi í umferð á Íslandi. Hugvitið er norskt þótt bíllinn hafi verið smíðaður í Finnlandi. Notkun bílsins er hluti af fjölþjóðlegu verkefni sem Íslensk NýOrka sér um hér á landi og prófar bíla sem nota rafmagnsdreifikerfið sem orkumiðlara. Bíllinn hefur þegar verið í akstri á Grænlandi og þegar tilraunum og rannsóknum lýkur hér mun hann fara til Færeyja.
 
Hluti tilraunanna er að setja vetnis- og rafhleðslubíla í hendur fjölskyldna undir vinnuheitinu „Rafbílar til almennings“. Verkefnið hefur gengið vel og eru Benjamín og Eygló 7. fjölskyldan sem fær að leigja nýtæknibíl með rafmótor. Markmiðið er að skoða og mæla hvernig rafbílar standa sig á norðlægum slóðum því að veðurfar, einkum hitastig, selta og raki hafa áhrif. Einnig þarf að skoða aðstæður til hleðslu og reksturs áfyllingastöðva og skoða líftíma og viðhald þessrar nýju tækni. Orkusjóður, Rannsóknasjóður Landsvirkjunar og NORA styrkja verkefnin.
 
Rafgeymirinn í þessum bíl er eins konar saltgeymir sem inniheldur Natríum Nikkelklóríð (NaNICl). Hann er framdrifinn með 2 sætum og rúmgóðu skotti, hljóðlátur og snöggur upp. Hluti orkunnar nýtist til að halda geymunum heitum.


Viljayfirlýsing (MoU) milli Hyundai • Kia Motors og hagsmunaaðila frá Norðurlöndum um dreifingu á vetnisrafbílum.

Hyundai Kia Motors og helstu hagsmunaaðilar vetnis í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Íslandi hafa undirritað viljayfirlýsingu um samvinnu við að koma útblásturslausum vetnisrafbílum á markað. Með þessari viljayfirlýsingu vonast Hyundai Kia til að vekja athygli á hve framarlega fyrirtækið stendur á heimsvísu við framleiðslu vetnisrafbíla. Yfirlýsingin er einnig mikilvægt skref fyrir Norðurlöndin við að tryggja sér farartæki, en þau hafa lengi stefnt að því að verða með fyrstu heimshlutum til að nota hreina tækni í samgöngum. Náinn samstarfsaðili Íslenskrar NýOrku, frá "Norræna vetnisveginum" (Scandinavian Hydrogen Hyway Partnership, SHHP) undirritaði samninginn fyrir hönd Norðurlandanna sem og fulltruár frá Hyundai Kia Motors. Sendiráð Svíþjóðar og mennta- og efnahagsráðuneyti Kóreu vitnuðu undirskrift yfirlýsingarinnar við athöfn í Seoul í Kóreu 31. janúar 2011 og gæti þetta verið upphafið að nánara tæknisamstarfi.

Nánari upplýsingar og fréttatilkynning frá Íslenskri NýOrku og SHHP má finna hér.

(ensk útgáfa fréttatilkynningarinnar)

Fréttatilkynning frá Hyundai Kia má finna hér.

hyundai_signing_ceremony_low

Frá vinstri Sænski sendiherrann Lars Vargö, Bjørn Simonsen, HyNor, Björn Aronsson, Hydrogen Sweden, Mikael Sloth, SHHP, Dr.Woon Chul Yang, formaður tækniþróunardeildar Hyundai  Kia, Flemming Wennike, Hydrogen Link, Jón Björn Skúlason, Íslensk NýOrka, Nam Hoon Kang, the Korean Ministry of Knowledge & Economy. Mynd: Hyundai.

Maria
Vetnissveitarfélag á Lollandi í Danmörku

luftfoto2_rodsand_iLolland í Danmörku er lítil eyja í Eystrasalti. Þar er unnið rafmagn úr vindorku með vindmyllum. Þegar hvasst er verður til mikið rafmagn en í logni er vinnslan lítil. Til að  mæta þessum sveiflum er framleitt vetni úr vatni og það geymt til að framleiða rafmang þegar lítið blæs. Nú er að hefjast þriðji og síðasti þáttur þessarar áætlunar. Verkefnið nefnist Vetnissamfélag á Lolland, og er markmiðið að verða fyrirmynd að evrópskum sjálfbærum sveitarfélögum með tilliti til orku og verður útblástur frá kerfinu nær enginn. 

Fyrsti hluti áætlunarinnar fólst í því að settur var upp stór vetnisrafall sem gat skaffað hita og rafmagn inn á mörg heimili í senn í Naskov. Vetnið er framleitt á einum stað úr umframrafmagni og geymt í þrýsti hylkjum þar til það er notað á efnarafal (FC) og fært inn á rafdreifikerfi bæjarins. Þetta fyrsta skref var æfing í bestun á rafdreifikerfinu sem þegar var til staðar og til að kynna tæknina fyrir þeim sem eiga að reka hana og njóta þjónsutunnar. Næsta skref hófst 2008 og þá voru tengd fleiri heimili inn á kerfið og samhæfing hófst á milli eftirspurnar og dreifingar. 5 smærri efnarafölum var einnig komið fyrir í jafnmörgum húsum í dreifðari byggð í tilraunaskyni. Raflarnir eru 2 kw hver og fylgir þeim áriðill svo tengja megi vanaleg heimilstæki inn á rafmagnið við ( DC -> AC). Á þessu svæði voru áður dísel - eða gas rafstöðvar í hverju húsi sem vetnis-rafall tekur nú við og er hann á stærð við ísskáp. Þriðji og síðasti hluti áætlunarinnar mun einnig taka 2 ár en þá verður skipt út röflum í  35 - 40 húsum í viðbót. Hér er sagt nánar frá verkefninu á dönsku og ensku: www.hydrogen-community.dk/


Maria
Ný markmið - ný tækni - fullt af tækifærum

composit_carNú er að hefjast enn eitt spennandi ár í ferli orkuskipta í samgöngum. Íslensk NýOrka þarf ekki síður en aðrir að huga að breyttum aðstæðum. Stefna verður tekin bæði í samræmi við þróun hérlendis og erlendis en þörf er á vel skipulögðum og samhæfðum vinnubrögðum sem lúta að vinnu við að skipta út orku í samgöngum á Íslandi. Reynsla NýOrku spannar nú 11 ár.

Langtímamarkmiðið er að stuðla að minnkandi útblæstri frá samgöngum, notkun innlendrar orku í geiranum og notkun á orkudreifikerfinu sem fyrir er í landinu.

 

Þar sem Íslensk NýOrka hefur unnið með rekstur á rafgreiningarstöð, vetnis- og rafgeyma í farartækjum sem og tvinnbíla er sjálfgefið að taka mið af eftirfarandi punktum úr Mckinsey skýrslunni  sem kom út í desember 2010 um stöðu rafbíla á markaði nú og í framtíðinni. (sjá fyrri frétt)

 

  1. Engin ein tækni mun verða allsráðandi á markaði í framtíðinni og ryðja öðrum burtu. Þar sem aðstæður og kröfur verða mismunandi mun fjölbreytt tækni verða notuð eftir því hvar hún hentar.
  2. Núna er verðmismunur greinilegur milli tæknilausna, en þessi verðmunur mun mást út. Þess er vænst að efnaraflar muni lækka um allt að 90% og rafhlöður um 80% fyrir 2020. Fyrir kaupendur verður því enginn munur á tæknilausnum verða
  3. Rafhlöðubílar eru orkunýtnastir en ná ekki drægi eða stærð vetnisfarartækja Hvorug gerðin nær mesta drægi bensín-
  4. Ef notuð er olía og tengiltvinntækni verður lífeldsneyti áhugaverður kostur, en hafa ber vistferil þess í huga því orka getur víða tapast á leið þess um borð í bílinn
  5. Fram til ársins 2025 getur verð vetnis lækkað um 70% miðað við núverandi framleiðsluverð úr metangasi. Þetta er háð skynsamlegri uppbyggingu innviða og dreifikrerfa
  6. Þar sem endurnýjanleg orka er fáanleg er vetnisvinnsla úr vatni bæði auðveld og dreifing með rafdreifikerfi til markaða einföld og ódýr, en verðið ræðst af byggingu vetnisstöðva og markaðshlutdeild.
  7. Gert er ráð fyrir að vetnisáfyllingastöðvar sem sinna 1 milljón farartækja fyrir árið 2020 kosti 3 Miljarða. En þegar litið er til lengri tima má búast við að kostnaður við að byggja áfyllingarstöðva verði einungis um 5% af kostnaði farartækjanna. Gera má ráð fyrir að á sama tíma hætti olíufyrirtæki að byggja bensínstöðvar og að halda þeim við. Það eru byrjunarfjárfestingin sem er erfiðasti hjallinn og er því litið til stuðnings hins opinbera við að oma þeim í kring. 
  8. Öll driftækni getur sameiginlega dregið úr CO2  útblæstri frá samgöngum. En til að ná endanlegu markmiði við að draga 95% úr koltvísýringi frá geiranum verður ekki hægt að styðjast eingöngu við brunahólfsvélar eins og nú eru í flestum farartækjum, því er vert að byrja sem fyrst að innleiða nýju tæknina
  9. Vetni sem gert er úr jarðgasi getur fyrirsjáanlega náð að minnka útblástur um allt að 30%, en til að ná endanlegu markmiði verður að miða við að allt vetni (og rafmagn á rafgeyma) eigi rætur sínar í endurnýjanlegri orku.

Öll skýrslan er hér:  www.zeroemissionvehicles.eu/ á ensku. (The role of Battery Electric Vehicles, Plug-in Hybrids and Fuel Cell Electric Vehicles samantekt sem 31 framleiðandi stóð að til að skoða raunverulega stöðu of framtíð rafhgeyma- og vetnisbíla.)


Tímamótaskýrsla um rafsamgöngur
raftengillFyrir nokkru tóku sig saman 31 stærstu fyrirtækjum Evrópu sem vinna að bíla- og eldsneytisframleiðslu og létu taka saman heildstæða skýrslu sem lýsir framtíð rafsamgangna.Rafgeymabílar eiga stutt í að koma á markað í auknu mæli en þeir munu þó verða dýrari en hefðbundnir bílar. Rekstrarkostnaður slíkra bíla er þó lægri svo gera má ráð fyrir því að heildarkostnaður slíkra bíla gæti orðið samkeppnishæfur á árabilinu 2015-2020. Skýrslan er bjartsýn fyrir vetnisrafbíla, þó framleiðslukostnaður þeirra sé hærri en rafgeymabíla. Skýrsluhöfundar gera ráð fyrir að það gæti breyst á þessum áratug. Einnig er gert ráð fyrir að mikil framleiðsluaukning verði á vetnisbílum eftir 2015 og að verðið verði samkeppnishæfara.
Skýrslan fjallar einnig talsvert um innviði til orkuáfylliinga, bæði fyrir rafgeyma og vetnisrafbíla og kemur í ljós að nokkuð er í land með innviði fyrir báðar gerðir. Skýrsluhöfundar telja mikilvægt að koma á öflugri samvinnu fyrirtækja og opinbera aðila þegar kemur að uppbyggingu fyrstu innviða. Án innviða gæti markaðshlutdeild hreintæknibíla orðið hægari en ella og því er mikilvægt að lykilaðilar vinni saman að fyrstu skrefum.
Skýrslan er unnin af óháðum aðilum og hvetjum við alla þá sem áhuga hafa á visthæfum bílum að lesa hana enda mjög mikilvægt innlegg í umræður um fratmíðar samgöngur á Íslandi.
 
 
 
 
 


Rafbílar komnir í hendur á almenningi

 Þann 17. ágúst síðastliðinn fór verkefnið ,‚Rafbílar fyrir almenning´' formlega af stað þegar fyrstu tvær fjölskyldurnar keyrðu sína leið annarsvegar á Ford Focus vetnisrafbíl og hins vegar á Mitsubishi iMIEV rafgeymabíl.

 

Næsta mánuðinn munu fjölskyldurnar ferðast um götur borgarinnar á visthæfum ökutækjum. Auk umhverfislegs ávinnings munum við hjá Íslenskri NýOrku fylgjast náið með þeim og öðlast upplýsingar um notkunarmynstur slíkra bíla og orkunotkun í hefðbundinni notkun. Mikilvægustu upplýsingarnar eru þó að kanna væntingar fólks til slíkra bíla og hvort þeir uppfylli þarfir hefðbundinna fjölskyldna. Um er að ræða tilraunaverkefni sem mun aðstoða aðila við undirbúning á markaðssetningu slíkra bíla í framtíðinni. Fylgst verður með fjölskyldunum frá upphafi og tekin verða viðtöl við fjölskyldurnar a.m.k. þrisvar sinnum á verktímanum.

Eitt af því sem kannað verður er aðgengi fólks að orku. Varðandi vetni þarf að taka tillit til þess að aðeins ein eldsneytisstöð er í landinu, Skeljungsstöðin á Vesturlandsvegi. Varðandi rafgeymabílinn þá þurfa þátttakendur að huga að aðgengi að innstungum til að endurhlaða rafgeymana. Slíkar upplýsingar ásamt orkunotkun og viðhorfi fólks til hleðslutíma þarf að skoða ásamt því að afla þekkingar á hvernig dreifikerfið á Íslandi getur tekið við slíkum bílum

Verkefnið hefur til umráða 1 rafgeymabíl af sömu gerð og iðnaðarráðherra hefur til afnota ( iMIEV frá Mitshubishi).  Það er Höldur, Bílaleiga Akureyrar, sem á þann bíl en Höldur styrkir verkefnið. Einnig er verkefnið styrkt af ferðaskrifstofunni Ísafold, Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur, Heklu og NORA rannsóknasjóði.

Verkefnið nýtir svo 3 Ford Focus vetnisrafbíla og eru því fleiri fjölskyldur að keyra slíka bíla í einu. 

 

 

 

 

 

 

 

Lilja
Borgarstjóri á vetnisjeppa

Íslensk NýOrka afhenti borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr, vetnisjeppa til afnota í síðustu viku. Bíllinn er af gerðinni Ford Explorer og virtust bæði borgarstjóri og bílstjóri hans vera hæstánægðir með gripinn. Borgarstjórinn fær þennan bíl í samræmi við væntanlegan samning við ýmsa aðila sem bjóða nýorkubíla til tilraunaaksturs.

Hér má sjá umfjöllun mbl: Ekki hallærislegur á vistvænum bíl



100 umsóknir hafa borist

Margir hafa sótt um að fá að vera með í að tilraunaleigja rafbíla; um það bil 100 umsóknir hafa þegar borist. Valið verður úr þeiim á grunni þeirra upplýsinga sem beðið var um: Fjölskyldustærð, hvernig bílarnir munu nýtast og hvers vegna við ættum að íhuga viðkomandi umsókn. Auglýsingin er í Laugardagsmogganum bls 11 og það er tengill í hana í næstu frétt fyrir neðan!!

Algengustu spurningar þeirra sem hringja eru:

Hvernig sæki ég um? SVAR: Sendið tölvupóst á glk@newenergy.is eða sendið bréf á heimilisfangið Íslensk NýOrka, Grensásvegur 9, 108 Reykjavík. EKKI ER TEKIÐ VIÐ UMSÓKNUM Í SÍIMA

Ég vil bara rafgeymabíl, er það í lagi? Nei, ef umsækjandi fær annan bílinn er hann búinn að skuldbinda sig til að taka báðar gerðr af bílum vegna þess að tilgangur tilraunarinnar er að fá samanburð sömu bílstjóra á þeim bílum sem núna eru aðgengilegir. Leigjendurnir fá góðar leiðbeiningar í upphafi og verða að halda akstursbók á þeim tima sem þeir hafa farartækin til umráða.

Hvenær rennur umsóknarfrestur út? 29. júlí.

Hvers vegna er þetta bara fyrir fólk á höfuðborgarsvæðinu? - Svar: Vegna þess að viðhald og eftirlit er í höndum verkstæða á höfuðborgarsvæðinu. Einnig vegna þess að aðeins er ein vetnisstöð sem afgreiðir vetni; hún stendur við Grjótháls, 110 Reykjavik. 

Hvers vegna þurfum við að borga? Svar: Bílaleigan er niðurgreidd af fyrirtækinu um 80%. Bílar af þessu tagi eru dýrir ennþá og við reynum að hafa upp í viðhalds- og eftirlitskostnað sem og að greiða laun þeirra sem vinna úr gögnum sem safnað verður.

Hvaða máli skiptir að hafa bílskúr eða bílskýli? SVAR: Þetta er fyrsta kynslóð vetnis- og rafgeymabíla. Vetnisbílarnir mega ekki frjósa. Drægi rafgeymabílanna styttist til muna ef rafhlöðurnar eru kaldar.

Get ég ráðið því hvenær ég fæ svona bíl ef ég yrði fyrir valinu? Svar: Nei, það eru litlar líkur á því. Þeir sem valdir eru vegna þess að ölllum skilyrðum er fullnægt. Ekki er hægt að treysta á að bíll sé til staðar einmitt þegar viðkomandi hentar heldur brestur þetta á einhvern tímann á næstu mánðurum. Síðan getum við ráðstafað fleiri vetnisbílum í einu heldur en rafgeymabílum einfaldlega af því að við ráðum yfir fleir vetnisbílum.


Viltu taka þátt í rafmagnaðri tilraun?

Við leitum að átta fjölskyldum á höfuðborgarsvæðinu

 

 

 

 

 

 

 

 

til að taka þátt í rannsókn og leigja nýorkubíla (rafgeymabíl og vetnisrafbíl). Við viljum umsóknir frá 2-4 manna heimilum sem hafa áhuga á umhverfismálum. Ökumenn verða að hafa náð 22 ára aldri.  Æskilegt er að hafa bílskúr til umráða, en aðgangur að rafmagnsinnstungu fyrir bílinn er nauðsynlegur. Tilgangurinn er að kynna þá gerð rafgeyma og vetnisrafbíla sem nú eru í sjónmáli á markaði en hver þátttakandi skuldbindur sig til að reyna báðar gerðirnar hvora í einn mánuð í senn.

Hvers vegna köllum við þetta rafbíla-tilraun? Jú báðar gerðir eru knúnar rafhreyflum, rafgeymabíllinn fær rafmagn frá geymi en vetnisrafbíllinn kemst lengra á hverri orkufyllingu því hann getur unnið rafmagn úr vetninu um borð. Báðar gerðir eru rafbílar.

Sjá nánar auglýsinguna hér


Lilja
Vetni í veiðitúrinn

H2 farartæki – frábært í veiðitúrinn!

 

Fyrr í mánuðinum (Júlí 2010) fór framkvæmdarstjóri Íslenskrar NýOrku á 4x4 Ford Explorer vetnisjeppa í laxveiðitúr í Elliðaár í Reykjavík. Þessi túr sýndi hversu vel vetnistæknin hentar við fjölbreyttar aðstæður og stenst þær kröfur sem almenningur setur farartækjum. Með áframhaldandi þróun vetnistækninnar er búist við að stærð og drægi vetnis farartækja muni vera slíkur að jafnvel jeppaunnendur þurfi ekki að hafa áhyggjur.

 

"Upplifunin við það að fara í fiskveiði á útblásturslausum nýorkubíl var einstök. Ég er nokkuð viss að þetta var fyrsta skipti sem vetnisbíll er notaður í þessum tilgangi. Auðvitað skaðaði ekki að ég og konan mín veiddum tvo laxa í túrnum. Ég hlakka til að geta notað vetnisrafbíla í alla framtíðar notkun - og er ég fullviss að það verði innan fárra ára" sagði Jón Björn eftir ferðina.

 

María
Visthæf orka í samgöngum

Fimmtudag 2. júní var haldinn sérlega velheppnaður vinnufundur fyrir þá mörgu sem eru að sýsla við að nota nýja orku og nýja tækni í samgöngum. Þar voru flutt erindi um breytingu á bílum í rafhlöðubíla, nýjustu gerðir af rafbílum með og án vetnis, metanbíla og breytingu á bílum með sprengihreyflum, verkefni og notkun á lífdísli og orkuáfyllingarkerfi af ýmsu tagi. Fundurinn var haldinn í Háskólanum í Reykjavik og komu nokkrir fundargestir á nýtæknibílum. Var þeim lagt á stæðum við skólann og sýndu fundargestir ( og nokkrir túristar) uppákomunni mikinn áhuga.

Merkið táknar endurnýjanlega visthæfa orkukosti

Kynnt var ný áætlun um orkuskipti í samgöngum og merki hennar: Græna Orkan. Ástæðan er sú að skipaður hefur verið nýr hópur fólks til að setja fram áætllun í áföngum um það hvernig megi breyta orkunotkun í farartækjum og nýta innlenda orku í meira mæli. Á næstu mánuðum má búast við tillögum til samhæfingar í þessum málum og hefur verkefnið fengið eigin heimasíðu: www.graenaorkan.is Þar munu fyrirlestrarnir af vinnufundnum  birtast von bráðar. Merki grænu orkunnar er hringur eða hjól sem er tákn þess sem endurnýjast. Form hjólsins sameinar mismunandi innlenda visthæfa orkukosti: Vindmylluspaðana eða túrbínuhjólið fyrir raforkuna og blómið fyrir lífdísel og metan. Þegar rýnt er í formið má líka sjá straumkast eða iðu auk þess sem hver pílári hringsins er gufubólstri og þannig tákn jarðvarmans.

Bílarnir sem boðnir voru i reynsluakstur voru meðal annarra Breyttur stór metanjeppi sem nýtir bæði metan og bensín. Kínverksur rafhlöðubíll með blýsýrugeymum, iMEV sem ráðherra brúkar daglega, REVA bíll Orkuveitunnar, breyttir bílar frá Háskólanum í Reykjavik, metan Mercedes-bíll og fleiri. Einnig var til sýnis Teslabíll í eigu EVEN. Jafnvel sásst til hjólreiðafólks. Fyrir hópi iðnarráðherra fara Jón Björn Skúlason (Vistorku) og Hólmfríður Sveinsdóttir (Iðnaðarráðuneyti og geta þau veitt frekari upplýsingar.


María
Iðnaðarráðuneyti, Orkuveitan og Landsvirkjun á rafgeymabíl

Það rigndi örlítið fyrir hádegi í morgun þegar Katrín Júlíusdóttir tók við öðrum af tveimur MiEV bílum sem komnir eru á götuna. Við þetta tækifæri var líka vígt grænmerkt bílastæði framan við ráðuneytið á Lindargötu þar sem hægt er að stinga bílnum í samband. Slíkir rafmagnshleðslustaurar eru nefndir Orkupóstar og hafa rafbílaökumenn lykil til að opna fyrir innstunguna. Það er Orkuveitan sem á heiðurinn af orkupóstinum, sem og þeim sem eru í Bankastræti, Kringlunni og Smáralind. Þeim mun vonandi fjölga á næstu mánuðum, en ekki hefur verið talað um hraðhleðslustöðvar þar sem þær krefjast flóknari umbúnaðar. Landsvirkjun hyggst nota sitt eintak á vatnsaflsstöðvum sínum til dæmis við Sogið og Búrfell.

Bílarnir taka 4 farþega en eru hannaðir fyrir vinstri handar umferð eins og tíðkast í Japan. Hekla (sjá mynd af Sverri afhenda Katrínu lyklana) hefur umboð fyrir Mitsubishi og er ánægjulegt að fyrirtækið skili fyrsta raðsmiðaða bílnum af þessu tagi sem kemur til Evrópu til Reykjavikur. Íslensk NýOrka hefur unnið að því að koma bílnum í höfn og móta notkun þeirra hérlendis. Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavikur og bílaleiga Akureyrar hafa einnig stutt við verkefnið, enda verður hinn MiEVbíllinn sem orkufyrirtækin hafa einnig til umráða og verða þeir notaðir samhliða metan- og vetnisbílum í þjónustuflotanum.  Katrín minnti á að ríkisstjórnin mun tilkynna von bráðar um frekara átak til að auka notkun á íslenskri orku í samgöngum.

María
Ísafold styrkir tilraunir NýOrku
Annað árið í röð styrkir ferðaskrifstofan Ísafold við rannsóknir og tilraunir Íslenskrar NýOrku. Ísafold selur ferðir um Ísland með leiðsögn þar sem ferðamenn geta sjálfir ekið um hálendisvegi og sandstrandir. Draumur fyrirtækisins er að nýta íslenska orku á farartæki þannig að minni útblástur fylgi ferðum þeirra um landið. Á heimasíðu Ísafoldar er nánar greint frá starfsemi þeirra en NýOrka þakkar kærlega fyrir stuðninginn, enda sækja ferðamenn mikið upplýsingar frá tilraunaakstri á vetni og rafgeymum.

María
2 Rafgeymabílar afhentir til notkunar

Tveir rafgeymabíílar af gerðinni MiEV verða afhentir notendum 12.maí. Orkuveita Reykjavikur og Landsvirkjun deila með sér notkun á öðrum en Iðnaðarráðuneytið hefur afnot af hinum. Hægt verður að tengja bílana með venjulegri rafmagnssnúru í heimilstengla. Eins og fyrr fær starfsfólk orku-fyritækjanna að nýta bílana í vinnunni þegar hentar en þetta eru snotrir smábilar fyrir 4 farþega.

Síðar á árinu verða gerðar mælingar á orkunotkun og viðhorfi ökumanna til bílanna. Það verður Íslensk NýOrka og Orkusetur sem hafa umsjón með þeirri rannsókn og er ætlunin að bera niðurstöðurnar saman fyrir annars vegar vetnisrafbíla og hins vegar rafgeymabílana. Orkusjóður og norræni orkusjóðurinn styrkja verkefnið en nánar verður greint frá því síðar.

Maria Maack
Vetnisrafbílarnir afhentir

Mánudaginn 18 janúar kom saman hópur glaðlegs fólks til þess að afhenda og taka við vetnisrafbílunum sem komu til landisns í desember. Katrín Júlíusdóttir, Egill Jóhannsson og Jón Björn söguðu nokkur orð á jákvæðu nótunum um að nú væri að komast skriður á notkun hreinnar bíltækni. Katrín nefndi að hið opinbera og sveitarfélög muni taka höndum saman til að hvetja fyrirtæki og almenning til að nýta innlenda orku í samgöngum á allra næstu mánuðum.

Þessir 10 bílar sem nú komast í gagnið hafa verið leigðir til Landsvirkjunar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Keilis, Orkuveitu Reykjavikur, Eldingar, Skeljungs, Brimborgar og nýs fyrirtækis sem sér um viðhald vetnisrafbíla og nefnist Vetnisrafbílar ehf. Vetnisstöðin hefur verið stillt upp á nýtt þannig að áfyllingarbúnaðurinn biður aftur um kílómetrastöðuna frá bílstjórum áður en vetninu er hleypt á tankinn.

Bílarnir hafa verið skreyttir utan allt eftir óskum hvers leiganda. Því má fólk í borginni gera ráð fyrir því að sjá Ford Focus vetnisrafbíla í ýmsum birtingarmyndum á næstunni. Skoðið útlit þeirra á síðunni undir Vetnisbílar Ford focus


Maria
10 nýjir Ford Focus raflabílar

  14. desember 2009 tóku Íslensk NýOrka og Brimborg á móti 10 nýjum efnaraflabílum af gerðinni Ford Fókus. Þessir bílar hafa verið notaðir áður en Ford valdi Ísland til að ná hámarksnotkun á þessari kynslóð efnaraflabíla sinna. Þetta er mikil viðurkenning gagnvart rekstri vetnisstöðvar, sem er í höndum Skeljungs og eftirliti og viðhaldi með bílum af þessu tagi, sem er nú í höndum Icelandic Hydrogen. Þetta er einkum ánægjulegt sem okkar framlag til að sýna vilja í verki á meðan á fundi um loftslagsmál stendur í Kaupmannahöfn. Munið einnig að 7 bílaframleiðendur hafa sent út sameiginlega yfirlýsingu um efnarafla fyrir árið 2015. Hér má finna yfirlýsinguna.

Bílarnir verða leigðir út til fyrirtækja en algengara er orðið að til boða standi fyrir starfsmenn fyrirtækja að fá lánaðan bíl í ýmsar útréttingar í stað þess að fyrirtækið greiði þeim bílapeninga. Ford Fókus-bílarnir bætast við þá vetnis Príusa sem fyrir voru og er vetnisbílafloti hér á landi því orðinn sá stærsti sinnar gerðar í Evrópu eða 22. Atburðurinn er enn eitt skref í þá átt að færa orkunotkun í samgöngum yfir í innlendar orkulindir og auka á orkunýtni á sama tíma, enda vetnisbílar eins og rafhlöðubílar með rafmagnshreyfla og því bæði sparneytnir og án útblásturs.

  Við móttökuna nefndi forstjóri Brimborgar að þótt það kosti nokkra fjárfestingu í upphafi þá hafa iðnríki marga möguleika til að draga úr útblæstri og spara á sama tíma og kerfin séu gerð sveigjanlegri. Þess vegna beri að líta á nauðsyn þess að draga úr koltvísýringsútblæstri sem tækifæri fremur en ógnun. Hvert visthæft skref færit okkut í átt að minni notkun kolefnisríks eldsneytis.

Bílarnir koma fljótlega á göturnar en að þessu sinni eru þeir í nokkrum mismunandi litaútfærslum en númeraplötur þeirra hefjast á H2 -0.

María
Frábær kennsluvefur

Frábær kennsluvefur um vetni hefur verið settur upp á vegum Valdimars G Valdimarssonar sem löngum hefur verið seigur við að fræða um nýja orkutækni og vetni. Vetni Sjá ÍNO efna


Beth
Rallý dagur 3

Í gær lauk erfiðu rallýi og var síðasti dagurinn mjög krefjandi á bílana. Loks hafði Explorer jeppinn eitthvað fram yfir aðra, þótt voru hraðaþrautirnar tvær sóðu í honum.  NýOrku liðið endaði í 4. sæti í heildakeppni vetnibíla sem verður að teljast frábær árangur. Þessi keppni hefur reynt á alla vistbílana sem enn eru í þróun í braut sem hönnuð er fyrir alvöru keppni á bílum sem eru byggðir fyrir slíkt.  Fjölbreytni rafbíla vakti athygli, þó að flestir hafi verið sérbyggðir rafgeymasportbílar. Þess ber að geta að batterísbílar fóru aðra leið en vetnisbílarnir, voru eingöngu á malbiki og óku styttri leiðsvo að árangurinn var ekki samanburðarhæfur.

Hins vegar fór keppnin fram í ótrúlega fallegu umhverfi, sól og blíða allan tímann.

Maria
Rallý dagur 2

Víkingarallýið hélt áfram í gær og hóf Jón Björn framkvæmdastjóri keppnina í 5 sæti. Bíll hans er þyngsti og stærsti bíll keppninnnar, FC-Ford Explorer. Bíllinn vakti athygli á fyrsta degi fyrir góða snerpu og hraða og náði 4 sæti í hraðaþraut keppninnar, sem var „autoslalom“ upp bratta brekku. FC-Ford Focus var sigurvegari enda ökumaðurinn Henning Solberg, þaulvanur rallýkappi. Þann 12/5 var ekið frá Langesund í gegnum Kristiansand til Lyngdal. Tvær tímaþrautir voru hluti keppninnar en úrslit liggja ekki fyrir. Þó er ljóst að í fyrri tímaaþrautinni náði Jón Björn ca miðju sem verður að teljast frábært á jafn stórum og þungum bíl. Henning Solberg var sigurvegari  á 7 sek. skemmri tíma 

Mikla athygli vakti í dag að Solberg keyrði brautina fyrst til kynningar, einu sinni á Think rafbíl og hins vegar á Teslu og var Think rafbílinn 3 sek. hraðari.


María
Bílar í Víkingrally

Víkingarallýið teflir saman bílum af ýmsu tagi frá mörgum farmleiðendum. Þetta sýnir að rafbílar (BEV) eru framleiddir hjá Mitsubishi, Peugoet, Fíat, Tesla og Think svo að tekin séu dæmi. Dæmi um vetnisbíla eru Prius með rafhlöðu tenglum (PHEV) eða tvinnbílar sem brenna vetni (H2) og setja inn á rafhlöðu fyrir utan það að hægt er að hlaða hana beint. Think, Ford, Daimler, Mazda, og Fíat eru með rafala vetnisbíla (H2FC) með mismunandi tækni. Síðan eru nokkur nýstárleg farartæki í hópi míni-rallý þátttakenda eins og rafreiðhjól, lokaðir mínibílar, Allt er þetta haldið í tengslum við rafbílaráðstefnuna EVS24 sem á sér stað í Stavanger í næstu viku. 

 

Meðfylgjandi tafla og myndir sýna nokkra þátttakendur og sannar þetta – ásamt frétt vikunnar um að Honda sé að setja Honda FCX clarity í fjöldaframleiðslu góð vísbending um að nú sé þetta alveg að koma. – en tækniþróun og prófun tekur langan tíma og allt þarf að ganga upp.

María
INO í Noregi fyrir "Víkingrally"

Í dag , 11 maí hefst vetnisbílarallý, - svokallað „Vikingrally“ í Noregi. Ekið er frá Osló til Stavangurs sem er tæplega 700 km löng leið. Í rallýinu keppa líka rafbílar en þeir fara styttri leið.  Um er að ræða 30 keppendur, 15 vetnisbíla og 15 rafgeymabílar. Hákon Noregsprins tekur þátt  í dag en einnig keppir Henning Solberg (kunnur norskur rallýkappi) á Ford Focus efnarafalabíl, sem reyndar var sendur héðan til Noregs. Íslensk NýOrka er með í rallýinu og mun keyra stærsta bílinn í keppninni: Ford Explorer  Rafala- vetnisbíl og verður spennandi að sjá hvernig svo stórum bíl reiðir af í kappakstri.   Jón Björn Skúlason framkvæmdastjóri NýOrku mun keyra bílinn og aðstoðarbílstjóri er Christopher „Toffen“ Kloed, sem var einn af aðal tæknihönnuðum vetnisstöðvarinnar á Grjóthálsi. Einnig munu stjórnarmennirnir Jakop Sigurður Friðriksson (OR) og Þorsteinn I. Sigfússon (NMI) verða með fyrsta daginn.

Norðmenn eru samtímis að taka stór skref í uppbyggingu vetnisdreifingu enda verða tvær vetnisstöðvar opnaðar þennan fyrsta keppnisdag, ein í Olsó og önnur í Drammen. Fyrsta dagleiðin í Porsgrunn þar sem nú þegar er vetnisstöð í gangi.

 

Nánari upplýsingar um rallýið má finna á www.vikingrally.no en við hjá NýOrku munum greina frá gangi mála og hvernig okkar manni reiðir af . Hér er um einn stærsta vetnisviðburð að ræða í málum í langan tíma, þ.e. að opnaður skuli vera yfir 600 km löng leið þar sem hægt er að nálgast vetni alla leið (sjá nánar www.hynor.no ).

 

Meðfylgjandi eru myndir frá deginum, þar sem meðal annars má sjá Prins Hákon, Leilani Munter fræga Indy 500 aksturskappa sem keyrir einnig á Ford og Henning Solber rallýkappa.


María
Fyrsti fullvaxni rafjeppinn kominn til landsins

Ford hefur afhent Íslenskri NýOrku fullvaxinn Explorer 4X4 FCV rafjeppa til rannsókna og tilraunaaksturs. Um frumgerð er að ræða, sem komin er til landsins í tengslum við SMART-H2 verkefnið, eitt viðamesta vetnisverkefni, sem unnið er að í Evrópu um þessar mundir. Með þessum fullvaxna jeppa hefur verið sýnt fram á að rafbílar geta verið stórir og kraftmiklir, þvert á viðtekin viðhorf.

 

 

Hvert er markmiðið?

Koma Explorer FCV til landsins er  liður í samstarfssamningi Ford og Íslenskrar NýOrku og er Ísland fyrsta Evrópulandið, sem fær bílinn til rannsókna og reynslu. Hann er búinn 65 kW vetnisknúnum PEM efnarafali og 50 kW NiMH rafgeymi og hefur 220 til 340 km drægi, allt eftir gerð vetnistanks. Að öðru leyti en því að hann gengur fyrir rafmagni, er rafjeppinn sambærilegur hefðbundnum jeppum hvort heldur litið er til aksturs- og jeppaeiginleika, áfyllingartíma, rýmis eða afls. Rannsóknir Íslenskrar NýOrku munu beinast að þáttum, sem tengjast m.a. tæknilegum áreiðanleika rafjeppans við íslenskar aðstæður og hagnýtum rannsóknum á vetnisnýtingu í samgöngum í efnahagslegu, umhverfislegu og samfélagslegu tilliti. Jafnframt verður samanburður gerður við aðra visthæfa samgöngutækni, s.s. metankbíla, tengiltvinntækni (plug-in hybrid) og tvinntækni (hybrid). Rannsóknirnar eru liður í viðamiklum rannsóknum Íslenkrar NýOrku í visthæfri samgöngutækni sem mikill fjöldi fyrirtækja og opinberra aðila hefur komið að hér á landi á undanförnum misserum. Áætlað er að þeim ljúki á næsta ári.

 

Er vetni framtíð rafbílsins?

Samstarf Ford og Íslenskrar NýOrku  er til marks þá sterku stöðu sem Ísland hefur í rannsóknum á vistvænni samgöngutækni og er þetta þriðja vetnisbílagerðin frá Ford sem kemur hingað til lands. Þróun stærri og aflmeiri rafbíla er að valda straumhvörfum í visthæfum samgöngum. Með komu þeirra þykir sýnt að rafbílar eru líklegastir til að verða ofan á í samkeppninni um nýjar samgöngulausnir. Ef litið er til helstu bílaframleiðenda þá er smærri rafbíla (rafgeymabíla) að vænta á almennan markað fyrir lok ársins 2012 og stærri og aflmeiri FCV bíla (efnarafalsbíla) fyrir árslok 2015. Ljóst er að þessi þróun fellur afar vel að íslenska orkumarkaðnum, sér í lagi nái vetnisknúnir rafbílar á borð við Explorer FCV að festa sig í sessi á alþjóðlegum markaði.

 

Hvert er vandamálið?

Rafvæðing samganga hefur lengi legið í loftinu, samfara sífellt þyngri áherslu á þróun visthæfrar bifvélatækni. Hljóðlát bylting rafbílanna hefur þó látið á sér standa, aðallega sökum þeirra annmarka sem notagildi þeirra er sett í samanburði drægi, áfyllingarhraða, kraft og stærð hefðbundinna bensín- og díselbíla. Fyrir vikið hefur ímynd rafbíla verið sú, að þeir séu smáir, kraftlitlir og stuttdrægir, auk þeirra klukkustunda  sem það tekur að hlaða þá og  hafa framtíðarmöguleikar þeirra því  verið álitnir takmarkaðir. Þróun aflmeiri og stærri ökutækja á borð við Explorer FCV rafjeppann gengur þvert á þetta viðhorf og þykir nú líklegast að rafknúin farartæki verði á næstu árum ráðandi í samgöngum á landi og jafnvel legi. Um tvenns konar útfærslu verði að ræða eftir stærð og aflþörf eða endurhlaðanlegir rafgeymar fyrir smærri bíla og efnarafalar fyrir stærri bíla og báta.

 

Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra:

"Prófun þessa bíls hér og áhugi Ford á að vinna með Íslendingum er til vitnis um það að við erum hægt og bítandi að undirbúa komandi orkuskipti í samgöngum okkar. Það er haldið áfram að gera tilraunir með innlent eldsneyti, áhuginn á rafbílavæðingu er víða að finna og  vetnisáætlun stjórnvalda miðar áfram. Vegna fjármálahrunsins hefur athyglin færst á annað í bili, en við munum á næstu mánuðum leggja endurnýjaða áherslu á það að byggja upp innviði og undirbúa innleiðingu á vistvænum orkugjöfum í samgöngur og siglingar."  

 

Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku:

“Opinberir aðilar hafa staðið vel við bakið á þessari þróun. Það má hins vegar ekki fórna umhverfismálum enn frekar vegna efnahagskreppu, framtíðin er of verðmæt til þess. Stórlega er hægt að auka nýtingu innlendrar orku í stað jarðefnaeldsneytis án mikils tilkostnaðar. Til þess þarf aukið samspil fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkis, vilja – fjármagn kemur þar á eftir.”

 

Ísland meðal þeirra fremstu í visthæfum orkurannsóknum

SMART-H2 verkefnið (Sustainable Marine and Road Transport – Hydrogen in Iceland) er meðal þeirra rannsóknar- og þróunarverkefna sem skipað hafa Íslandi á bekk með fremstu ríkjum í rannsóknum á visthæfri samgöngutækni, en þar eru talin auk Íslands Þýskaland, Noregur, Kalifornía, Japan og Ítalía. Þennan árangur má rekja til samverkandi þátta á borð við smæð samfélagsins, framleiðslu grænnar raforku, öflugt þekkingar- og fræðasamfélag innan háskóla og fyrirtækja og góða tækniþekkingu hvað varðar rekstur vetnisstöðva og viðhald vetnisbíla. Þá hefur metnaðarfull stefna stjórnvalda í visthæfum samgöngum ekki síður komið við sögu og má þar m.a. nefna ívilnandi skattaumhverfi fyrir rannsóknir á þessu sviði. Að verkefninu stendur fjöldi fyrirtækja og opinberra aðila. Þeir helstu eru Vistorka, Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Háskóli Íslands, Háskóli Reykjavikur, Landsvirkjun og Orkuveitan, en um verkefnisstjórn sér Íslensk NýOrka. Nánari upplýsingar: newenergy.is.

 

Allir geta prófað Explorer FCV

Ford Explorer FCV verður í almennum reynsluakstri hjá Brimborg alla virka daga til 20. apríl nk. Þann 11 maí næstkomandi mun hann þátt í vetnisbílarallýinu Vikingrally í Noregi ásamt Ford Focus FCV.

Að því loknu kemur hann aftur til Íslands og verður hér á vegum Íslenskrar NýOrku til ársloka 2010. Áður hefur Íslensk NýOrka fengið til prófana Ford Focus FCV, Ford Edge FCV Plug-in (tengiltvinntækni) og bíla frá öðrum bifreiðaframleiðendum t.d. Daimler.

María
Fyrsti rafknúni jeppinn í fullri stærð í tilraunaakstri á Íslandi

Sú þróun sem á sér nú stað innan bílaiðnaðarins er afar jákvæð fyrir Ísland með tilliti til framtíðarnýtingu auðlinda. Ljóst er að rafvæðing samgangna liggur í loftinu og hafa nánast allir stóru bílaframleiðendurnir tilkynnt um slíka þróun.

 

Íslensk NýOrka ásamt samstarfsaðilum hefur sem kunnugt er gert tilraunir með vetni í samgöngum á breiðum grunni og má þar nefna strætisvagna, hefðbundna fólksbíla, auk tilrauna á sjó. Með Ford Explorer 4x4 munu tilraunirnar loks ná til jeppa í fullri stærð, knúinn rafmótor. Jeppin er að öllu leyti áþekkur þeim jeppum sem við Íslendingar þekkjum svo vel og gegnt hefur veigamiklu hlutverki í samgöngum hér á landi á undanförnum áratugum.

 

Sú ímynd hefur jafnan fylgt rafbílum, að um kraftlitla smábíla sé að ræða með lítið drægi. Þróun undanfarinna ára sýnir á hinn bóginn, að smíða má bíla sem uppfylla allar þarfir sem nútímafólk gerir almennt til fararækja, með auknu samspili rafgeyma og annarra orkubera, s.s. vetnis. Tilraunir eru víða hafnar með notkun á tengiltvinnbílum, þar raforka í samspili við jarðefnaeldsneyti eykur orkunýtinguna til muna. Á sama tíma hefur þróun verið ör á rafbílum, sem eingöngu nýta raforku frá rafgeymum. Slíkir bílar hámarka nýtingu eldsneytisins og munu leysa af hólmi stóran hluta bílaflotans. Með samspili slíkra bíla og vetnis er enn fremur hægt að uppfylla allar kröfur notenda um drægi bíla, áfyllingarhraða, kraft, stærð og mengunarlausa tækni. Ford Explorer FCV er sönnun þess.

 

 

 

Samfara þeim tilraunum, sem NýOrka hefur staðið fyrir á vetnistækninni, hefur fyrirtækið hafið mun umfangsmeiri rannsóknir á öðrum orkuberum, s.s. metani, rafgeymabílum, tvinn- og tengil tvinnbílum með samanburð við jarðefnaeldsneyti fyrir augum. Meginþungi rannsóknanna tengist efnahagslegum, umhverfislegum og samfélaglegum rannsóknum. Fjöldi aðila kemur við sögu, jafnt einkaaðilar sem opinberir aðilar og er gert ráð fyrir að rannsóknirnar skili víðtækari heildarsýn á visthæfa tækni. Þó að enn sé unnið að fjármögnun verkefnisins að hluta hafa fyrstu niðurstöður þegar litið dagsins ljós, en lokaskýrslur verða kynntar á næsta ári.

 

Þróun vetnisbíla hefur ekki verið jafn hröð og menn hafa vonast til. Á hinn bóginn vinna allir stærstu bílaframleiðendur af fullum krafti að vetnisknúinna efnarafala, þar sem þeir sjá samspil vetnis og rafgeyma sem langtímalausn vistvænni bíla og hækkandi verðs á jarðefnaeldsneyti. Þær auðlindir sem Íslendingar búa að til framleiðslu á vistvænu rafmagni falla því vel að þróun sem nú á sér stað.

 

Líklegt verður að teljast að rafgeymarafbílar muni aðeins leysa vandann að hluta til. Þrátt fyrir verulegar framfarir í rafgeymatækni glímir rafbíllinn enn við skammt drægi eða ~150 – 200 km að hámarki við kjöraðstæður. Það hefur því reynst erfiðleikum bundið að koma fyrir nægilega öflugum rafgeymum í stærri og aflmeiri bíla. Myndin hér fyrir neðan sýnir línurit þar sem borin eru saman tvenns konar tækniútfærslur eða rafgeymabílar annars vegar og bílar með efnarafala fyrir vetni og rafgeyma hins vegar.

Blöndun tækninnar virðist því henta mjög vel þegar bílar verða stærri og aflmeiri. Auk þess sem drægið margfaldast, þá er áfyllingartími bíla með rafgeyma afar langur. Vetnisáfylling tekur aftur á móti álíka langan tíma og áfylling á jarðefnaeldsneyti.

 

Flestir bílaframleiðendur eru sammála um, að efnarafalatæknin uppfylli öll skilyrði til framtíðar. Staða mála er því í hnotskurn sú, að meginvandi vetnistækninnar er ekki lengur tæknilegs eðlis, enda hefur hún þróast mjög ört á undanförnum árum. Vandinn er að tæknin er mun dýrari en sú er við þekkjum besta. Það er því verkefni næstu ára að lækka kostnaðinn til að tæknin geti orðið samkeppnishæf. Markaðurinn mun síðan ráða mestu um hvaða tæknilausn verður ofaná, en líklegast er að samþætting þróunar á rafgeymum og efnarafölum henti Íslandi best.

Opinberir aðilar hafa staðið vel við bakið á þessari þróun, en ljóst er að með breyttu efnahagsumhverfi hefur fjármagn minnað til vistvænna verkefna sem oft eru kostnaðarsamari í upphafi. Það er hins vegar ljóst að ekki er hægt að fórna umhverfismálum enn frekar vegna efnahagskreppu, framtíðin er of verðmæt til þess. Stórlega er hægt að auka nýtingu innlendrar orku í stað jarðefnaeldsneytis án mikils tilkostnaðar. Til þess þarf aukið samspil fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkis, vilja – fjármagn kemur þar á eftir.

 

Vetnisbílarallý í Noregi

Mikið og öflugt samstarf hefur verið við Norðmenn í tengslum við vetnisnýtingu. Norðmenn eru að byggja vetnisþjóðbraut milli Osló og Stavangurs, þ.e. að hægt verði að fá áfyllingu vetnis alla þessa leið (nánar www.hynor.no). Nú í tengslum við EVS (Electric Vehicle Symposium) verður haldið svokallað “vetnisbílarallý”(www.vikingrally.no). Í tengslum við þetta góða samstarf hefur verið ákveðið að senda tvo vetnisbíla á vegum Íslenskrar NýOrku í þetta rally og verður Ford Explorer FCV annar þeirra bíla. Hinn er Ford Focus FCV.  Ísland verður talsvert sýnilegt á þessari ráðstefnu, en auk þess sem þessir tveir bílar taka þátt í rallýinu, mun Forseti Íslands flytja ávarp og Íslensk NýOrka kynna fyrstu niðurstöður vetnisnotkunar á Íslandi í bílum sem og í bát (SMART-H2).


Maria
Rannsóknir innan SMART-H2

Íslensk NýOrka hefur umsjón með ýmsum rannsóknum sem tengjast nýrri driftækni í samgöngum. Sótt hefur verið umfjármagn til að styrkja stúdenta sem sinna verkefnum sem lúta að nýju íslensku eldsneyti, nýtæknibílum og hvernig fólki líkar sú tækni sem er að hasla sér völl. Allar rannsóknir sem stuðla að betri þekkingu á möguleikum Íslendinga við að nýta eigin orku og hráefni til samgangna falla undir þetta svið, hvort sem um er að ræða orku sem fæst úr lífrænum úrgangi, rafmagni, rafhlöðum og nýtni kerfa þeirra sem við sögu koma. Hvað eina er snertir hagræna þætti, umhverfisáhrif, aðkomu fyrirtækja eða hins opinbera að breytingum við að draga úr olíunotkun koma til greina innan þessa rannsóknaramma. Rannsóknaráætlun innan SMART-H2 sýna helstu skrefin, en hún var lögð fram strax í apríl 2007 en hefur tekið nokkrum breytingum síðan. Heildarsamantektin er reifuð í doktorsverkefni Maríu Maack.

Styrkir til rannsóknanna hafa fengist úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur, Orkusjóði, Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar, Rannís og úr erlendum styrktarsjóðum ýmist þeim norrænu eða úr rammaáætlunum EB. Rannsóknir hafa haldist á áætlun. Nýlega var sótt um styrki til allra verkefna sem eftir stóðu og er jafnframt mörgum þrepum lokið. Er stúdentum og umsjónarmönnum þeirra af hálfu háskólanna þakkað óeigingjarnt starf við að koma rannsóknunum í höfn, en flestir stúdentarnir hafa verið í meistaranámi við ýmsar deildir innan Háskóla Íslands fram til þessa.

------------------  Etirfarandi nemendur hafa lokið og skilað sínum rannsóknaverkefnum. Hlekkirnir tengjast útdrætti úr ritgerðum þeirra.

Elisabeth Anne Unger, um vinnslu og nýtingu lífræns eldsneytis við íslenskar aðstæður.

Lilja Guðmundsdóttir um dreifikerfi fyrir rafmagn innan veitukerfis Orkuveitu Reykjavíkur og staðsetningu hugsanlegra vetnisstöðva

Rósa Guðmundsdóttir um nýtni og mat á heildarorkukeðju fyrir vetnissamgöngur.

Helga Ögmundardóttir - viðhorf til visthæfra ökutækja 2007

------------------  Stúdentar sem nú vinna við rannsóknir sem tengjast SMART-H2 verkefninu eru

Elísabet Björney Lárusdóttir um samanburðaraðferðir og nýtni í vistbílum af ýmsu tagi

Eva María Þórarinsdóttir, ferðamenn og nýting visttækni

María Hildur Maack: Heildaráhrif þess á íslenskt samfélag að nýta rafmagn til samgangna. Í því er litið á breytingar á mannauði, félagsauði, mannvirkjum og dreifikerfi sem og hagræna þætti og notkun náttúruauðlinda.

Maria
Málstofa Brimborgar

Á málstofu Brimborgar um vetnisbíla og framþóun rafbíla skýrði Scott Staily, yfirverkfræðingur í rafalatæknideild Ford frá áætlun fyrirtækisins í því að samþætta vetnis og rafbílatækni. Scott kom fyrr á árinu til að flytja fyrirlestur á ráðstefnu North Atlantic Hydrogen Association og má finna fyrirlestur hans undir síðu frá ráðstefnu NAHA frá því í maí 2008.

Ford Focus efnarafalabílar hefur verið í notkun hér á landi frá því í fyrra og hefur hann reynst einkar vel.  Í Þýskalandi hefur sá bíll fengið bestu meðmæli. Til þess er tekið að drægni hans sé um 350 km á tanki. Vetnisbílarnir verða hjá Brimborg og getur fólk prófað þá fram til loka nóvember. Á málstofuna mættu um 40 manns og lýsti umræðan miklum áhuga. Bylgjan tók Jón Björn Skúlason tali eftir málstofuna og fylgir viðtalið hér á efit í umritun fjölmiðlavaktarinnar: 

Kristófer Helgason: Nú er verið að tala um rafmagnsbíla og það hefur nú reyndar verið í umræðunni upp á síðkastið þessi rafmagnsbílavæðing sem talin er muni hefja innreið sína um allan heim áður en langt um líður.

Bragi Guðmundsson: Já, það virðist vera eins og menn veðji frekar á rafmagnið heldur en vetnið í það minnsta.

Kristófer: Já, en það er spurt, hvenær munu visthæfir og vistvænir bílar komast á götuna. Munu þeir yfir höfuð komast í umferð. Hver er staðan í þessum málum og hvaða áhrif getur þróun vistvænna samgangna haft á Ísland og íslenska efnahagsþróun? Brimborg gekkst í dag fyrir málstofunni Íslenskt á tankinn - já takk í tilefni af því að tveir þekktustu vetnisrafbílar heims eru á landinu, það er að segja Ford Edge High Series sem er fyrsti tengitvinnbíll sögunnar og Ford Fusion Hydrogen 999 sem er hraðskreiðasti vetnisrafbíll heims. Við erum komin í samband við Jón Björn Skúlason sem er framkvæmdastjóri NýOrku, komdu sæll.

Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku: Komdu sæll.


Kristófer: Var einhver niðurstaða svona í, þegar þetta er tekið saman?

Jón Björn Skúlason: Raunverulega má  segja að menn eru að sjá hvernig er hægt að samnýta þá tækni sem er verið að þróa fyrir vetnið og leysa kannski helstu vandamál rafbíla sem eru áfyllingartími og takmörkuð drægni. Það tekur langan tíma að hlaða rafgeyma. Rafgeymabílar hafa ekki náð meira drægi en 100-120 kílómetrum. En eins og var sýnt í dag frá Ford, er hægt að setja vetni með í raunverulega sömu lausn og þá er búið að leysa þetta. Það er hægt að keyra þennan High Series alla leið til Akureyrar án nokkurrar áfyllingar.

Kristófer: Já og hvað erum við komin langt í þessari þróun, er þetta tækni sem að er tilbúin til framleiðslu eða?

Jón Björn Skúlason: Nei, þessi tækni er ekki tilbúin til fjöldaframleiðslu. Það sem er ljóst að er að gerast í þessum bílaheimi er að svokallaðir tengiltvinnbílar eru væntanlega að koma næstir á markað og þá er verið að tala um að hluti af orkunni sem fer í að knýja bíla kemur úr raforkukerfi landsmanna sem er náttúrulega mjög jákvætt skref og mundi draga úr notkun olíu á bíla. Nú, í framhaldi af því er ljóst að það koma á markaðinn nokkrar mismunandi tegundir rafbíla sem eru hreinir rafgeymabílar en þeir eru hugsaðir fyrir ákveðinn hluta markaðaðar vegna þess að drægi þeirra verður ja í flestum tilfellum á bilinu 100-200 kílómetrar og hleðslutíminn er ennþá 8 klukkustundir. En með því að bæta  vetnistækni við þá er hægt að leysa öll vandamál: rafmótor, nokkurra mínútna áfyllingartími, hægt að aka á rafhleðlunni og síðan vetninu. Þannig að fyrstu bílarnir sem koma á markað verða tengiltvinnbílar með bensíni, svo koma rafgeymabílar og það er nú væntanlegt að raðsmíði slíkra bíla hefjist upp úr 2010 og þeir gætu nú komið á markað fljótlega. Vetnisbílarnir með stærri rafgeymi en nú er koma svo í kjölfarið eða í kringum 2015.

Kristófer: En geta Íslendingar spilað stærra hlutverk í þessari þróun heldur en kannski áætlað hefur verið?

Jón Björn Skúlason: Ja, það er alveg ljóst og bara áhugi Ford að senda þessa bíla til Íslands og mæta með sína yfirmenn hingað til kynningar sýnir að þeir sjá fyrir sér að stefna Íslendinga í þessum málum er mjög mikilvæg. Reyndar eru Norðurlönd að taka mikla forystu í þessum málum. Við gætum gert miklu, miklu meira á þessum erfiðu tímum í gjaldeyrismálum ef við drögum úr notkun á jarðefnaeldsneyti þá erum við að spara stórlega í innflutningi á jarðefnaeldsneyti.

Kristófer: Já og rétta viðskiptahallann?

Jón Björn Skúlason: Ja, ég alla vegana tel að þetta sé tækifæri til að spýta í lófana. Nú vitum við að það er lítið fé til ráðstöfunar hugsanlega á  næstu árum til verkefna. En ríkið, ríkisvald og sveitarfélög geta tekið mjög mikilvæg skref til dæmis með að breyta skattlagningu, með því að taka upp umhverfisvæna samgöngustefnu í sínum fyrirtækjum, undirbúa byggingu á  fjölorkustöðvum og svo framvegis. Öll þessi skref er hægt að taka núna án þess að leggja út gríðarlegt fjármagn til að undirbúafyrir þá tíma þegar þessir bílar koma á markaðinn.

Kristófer: Já, en hvað með þróun og framleiðslu á þessum bílum, hefur það eitthvað verið rætt að það væri hugsanlegt að setja þessa bíla saman eða framleiða þá hér á landi?

Jón Björn Skúlason: Nei, það hefur nú ekki verið rætt. Við erum náttúrulega alveg sáralítill markaður og ég held að það tæki Toyotu 2 vikur að skipta um alla bíla á Íslandi úr sínum framleiðslukerfum. Þannig að það fara að smíða slíka bíla á Íslandi tel ég kannski ekki alveg á næstu grösum.

Kristófer: Ja, þá kannski að smíða til útflutnings?

Jón Björn Skúlason: Ja, en það er kannski annað mál að nú eru komin fyrirtæki, til dæmis í vetni sem eru að hanna vetnisstöðvar og dreifikerfi fyrir vetni sem eru innlend fyrirtæki, þannig að það eru komin þróunarfyrirtæki eins og Icelandic Hydrogen sem er að selja vetnislausnir til Evrópu og Bandaríkjanna og eru líka að þróa vetnisstöðvar. Þannig að þau ,,spin off áhrif" sem geta orðið af nýtingu innlendra orkugjafa gætu orðið líka útflutningsvara í framtíðinni.

Bragi: Er þessi nýja tækni eitthvað háð þyngd farartækisins, er hugsanlega hægt að sjá þetta fyrir sér á skipaflotann eða jafnvel strætó og aðrar samgöngur?

Jón Björn Skúlason: Ja strætó er náttúrulega einfalt mál og það er raunverulega verið að vinna mjög ört í því að koma þessari tækni um borð í strætisvagna. Við vorum náttúrulega með ákveðinn tilraunaflota, nú er að koma nýr floti á markað 2009 frá Daimler og reyndar fleiri framleiðendum. Þannig að það væri hægt að hefja innleiðinguna fyrr þar en þessi tækni er ennþá dýrari heldur en hefðbundin tækni og það er kannski lykilvandamálið í dag þegar lítið er til af peningum er að þessi fyrstu skref verða alltaf aðeins dýrari í byrjun heldur en sú tækni sem við erum að keppa við. Hins vegar hélt aðilinn frá Ford í dag því fram að hann gerir ráð fyrir því að verð á, að nota bensín verði dýrara í framtíðinni því að lönd munu skattleggja CO2 mengun og það mun fara inn í eldsneytisverð eða inn í bílaverð og þá náttúrulega eykst sá kostnaður og þá verður minni munur að keyra hreina bíla. En rafbíll í notkun á Íslandi hann kostar sáralítið og ef þú værir með til dæmis annan bíl á heimili eða fyrirtækjabíla og svo framvegis sem hreina rafbíla að þá er kostnaður við að nota raforku í slíka bíla hann er sáralítill miðað við að keyra á bensíni.

Kristófer: Já, þetta eru spennandi tímar. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri NýOrku kærar þakkir fyrir þetta.
Jón Björn Skúlason: Takk kærlega fyrir.


Maria
Málþing og útvarpsviðtal

Brimborg hélt málþing miðvikudag 5. nóv um framþróun í Ford - nýtæknibílum. Þetta eru vetnisbílar þar sem mögulegt er jafnframt að tengja rafgeymi bílsins til hleðslu en rafali sem notar vetni er megindriftæknin.

Helstu rökin með rafbílum sem arftaka bensín- og díselbíla felast í hárri orkunýtni rafmagnsbílanna. Í samanburði við að nýta rafmagnið beint er vetnistækni með lægri nýtni. Það sem þó hefur hamlað útbreiðslu rafbíla er einkum tvennt: stutt drægni annars vegar og langur hleðslutími hins vegar. Drægni rafbíla er á bilinu 70-130 km, allt eftir akstursaðstæðum, en með því að nýta skriðþunga bílsins til rafmagnsframleiðslu þegar hemlað er, hefur tekist að lengja hana nokkuð. Þá tekur að jafnaði um 6-8 klst. að fullhlaða rafbíl. Aðferðir sem flýta þessu ferli, hafa þann ókost í för með sér að stytta líftíma rafgeymisins.Orkuaðgengið fyrir rafbílana er auðvitað mikill kostur, en þá má hlaða í venjulegum heimilisinnstungum, auk þess sem þeir eru lausir við útblásturs- og hljóðmengun. HIns vegar þarf talsverða uppbyggingu fyrir hraðhleðslu og Scott lýsti því að rafgeyma-skiptistöðvar væru gífurleg fjárfesting sem erfitt er að hvetja fólk tiil að fara út í vegna sveiflukenndrar umferðar og spurningar um eignarhald á rafgeymum sem eru teknir úr og settir í rafbíla.

Vetnistækni hefur hins vegar þann kost að nota sams konar rafhreyfla, hægt er að búa til vetnið þar sem það er fyllt á á 5-10 mínútum, tæknin er visthæf og hávaðalaus og drægni vetnisbíls er talsvert betri en á rafbíl eða 300 til 400 km og skilar vetnistæknin miklu afli og hraðskreiðum farartækjum.

Þetta lýsir í grófum dráttum þróun nýtæknbíls frá Ford sem er tengiltvinn-vetnisrafbíll (!) og nefnist Ford Edge HySeries. Með þessari nýstárlegu tækniblöndu er verið að sameina bestu kosti annars vegar vetnisbíla og hins vegar rafbíla í bíl sem uppfyllir þá körfu að vera fullkomlega útblásturslaus, ná sama notagildi og nútíma farartæki hvað varðar afl og drægni og þægindi í notkun. Rafbílaeiginleikar tvinntækninnar draga úr vetnisþörf, á meðan vetnisdriftæknin sem kemur til kastanna til að auka afl og tryggja úthald í langan akstur án þess að endurhleðslu sé þörf. Þá má framleiða vetni án mikils tilkostnaðar eða birgaðsöfnunar á fjölorkustöðvum úr vatni og rafmangi á þeim stöðum sem áfylling fer fram því að rafmagn og vatn er aðgengilegt á flestum stöðum á landinu.

H'ðer er umritun fjölmiðlavaktarinnar á viðtali við J'on Björn Skúlason við Rás 2 eftir málstofuna.

Visthæfir bílar

Freyr Eyjólfsson: Hvenær munu visthæfir bílar komast á götuna? Munu þeir yfir höfuð komast í umferð og hver er staðan í þessum málum? Hvaða áhrif getur þróun visthæfra samganga haft á Íslandi og íslenska efnahagsþróun? Erum við e.t.v. nær því en nokkru sinni fyrr að fylla tankinn með íslensku eldsneyti? Hann er sestur hjá okkur hann Jón Björn Skúlason hjá Íslenskri NýOrku. Velkominn Jón.

Jón Björn Skúlason hjá Íslenskri NýOrku: Takk.

Freyr: Þú ert nýkominn af málþingi, Brimborg og fleiri voru að standa fyrir málstofu í dag sem að bar yfirskriftina Íslenskt á tankinn - já takk, í tilefni af því að nú eru tveir þekktir vetnisrafbílar á landinu og menn eru að skoða þessa bíla, prófa þá, þetta eru hérna Ford Edge HySeries, sem er fyrsti svona tengiltvinnbill sögunnar og Ford Fusion Hydrogen, sem er einn hraðskreiðasti bíll heims. Nú er staðan þannig að það er til fullt af svona bílum og núna er krónan í einhverju sögulegu lágmarki og það er dýrt að kaupa bensín og um að gera að nota íslenska orku. Er þetta bara orðið  raunhæft núna að kaupa sér og nota rafmagnsbíla eða einhverskonar vetnisbíl?

Jón Björn Skúlason: Því miður er það ekki orðið raunhæft. Það er samt að gerast mjög hratt þessa dagana og við getum sagt að þessi tækni sem að er að ryðja sér til rúms, sem er tengiltvinntæknin, hún er kannski það sem er nánast í tíma og þetta er raunverulega eftirfylgni eftir þessu tvinnkerfi sem að var kynnt með Toyota Prius og hefur núna komið í Ford Explorer. Þú getur stungið bílnum í samband og hluti af orkunni kemur raunverulega úr hefðbundnu raforkukerfi Íslendinga. Þessir bílar eru væntanlegir á markað innan tveggja ára og þá erum við að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis talsvert. Í framhaldi af því gerum við ráð fyrir því að markaðssetning hefðbundinna rafgeymisbíla, aukist og flest bílafyrirtæki tala um það í dag að bjóða upp á mismunandi lausnir frá árabilinu 2010 til 2012. Þessir bílar henta náttúrulega mjög vel á Íslandi þannig séð, það eru gallar við hreina rafbíla er að drægið er yfirleitt ekki nema 100 til 200 kílómetrar og áfyllingartíminn er 8 klukkustundir og að fylla bíl á 8 klukkustundum er yfirleitt eitthvað sem að almenningur er ekki sáttur við. Vetnistæknin hefur verið þróun í áratug núna og fleytir fram og menn eru orðnir mjög bjartsýnir. Það sem menn eru að gera í dag og Ford gerði í þessum High Series er að tengja saman þessa tengiltvinntækni og vetni og þar með ertu kominn með dragi upp í 400 kílómetra á þeim bíl, við getum keyrt héðan til Akureyrar á einni fyllingu, áfyllingartíminn á vetninu eru bara 3 til 4 mínútur, sem er hefðbundið miðað við bensínbíl, þannig að raunveruleg þróun bæði vetnistækninnar og raftækninnar falla mjög vel saman. Nýtni bílsins eykst með því að geta stungið honum í samband, það er kannski aðal ávinningur þess að vera með rafgeyma í staðinn fyrir vetni, við þurfum ekki að framleiða, við þurfum ekki að framleiða vetni, við töpum orku við að framleiða vetni, þannig að rafgeymirinn er mjög mikilvægur í þessari tækni.

Freyr: Já. Tengiltvinnbíll, útskýrðu aðeins hvað það er.

Jón Björn Skúlason: Tengiltvinnbíll er bíll sem þú getur stungið í samband. Tvinnbíll er svokallaður hybridbíll samþætt tvennskonar drifkerfi, í þessu tilfelli rafgeymnir og vetnisrafali. Bíll eins og Ford er að kynna í dag er, þú getur keyrt 40 kílómetra eingöngu á rafhlöðunni, síðan ef þú þarft að komast til Akureyrar án þess að þurfa að bíða í 8 klukkustundir þá fer vetnisvélin í gang og keyrir þig alla leið til Akureyrar og ef það væri vetnisstöð þar þá getum við fyllt hann þar á 5 mínútum og keyrt til baka. En ef við værum á hreinum rafbíl þá þyrftum við að keyra í Staðarskála og gista þar á meðan bíllinn er hlaðinn og svo getum við haldið áfram til Akureyrar. Þannig að það er kannski munurinn á, og ef við fléttum þessa tækni saman þá erum við komin með það sem ég kalla draumabíl Íslands.

Freyr: Prófaðirðu þessa bíla þarna áðan, þessa Ford-bíla?

Jón Björn Skúlason: Já þetta er náttúrulega bara snilld að keyra þessa bíla og maður vildi að kæmist hraðar á markað vegna þess að maður sér að bílaframleiðendur geta gert þetta, en kostnaðurinn er ennþá mjög hár.

Guðmundur Pálsson: En það var gerð tilraun hérna á Íslandi, ekki satt, fyrir ekkert mörgum árum síðan þar sem að strætisvagnar sem gengu fyrir vetni óku hér um götur borgarinnar og það var mikil vetnisstöð sem að var opnuð er það ekki uppi á Höfða?

Jón Björn Skúlason: Vetnisverkefnin er í fullum gangi, við keyrðum vetnisvagna í 4 ár, sem var 2 árum lengra heldur en við upphaflega áætluðum vegna þess að það gekk miklu betur en búsit var við. Nú eru 15 vetnisbílar í umferð á Íslandi, sem er þriðji stærsti flotinn í Evrópu. Þannig að daglega fara menn upp á vetnisstöð, fylla á vetnisbíl, það er ómönnuð stöð, ég er bara með mitt Skeljungskort, borga þar, fæ mitt vetni og held áfram mínu daglega starfi...

Freyr: Þú keyrir um á vetnisbíl?

Jón Björn Skúlason: Ég keyri dags daglega á vetnisbíl.

Guðmundur: En þú ferð ekki langt, er það? Þú ferð ekki nema sem bara sem nemur tankinum, eða hálfum tanki svo þú komist til baka?

Jón Björn Skúlason: Ja, hvað kallarðu langt? Elstu gerðir af vetnisbílum eru með drægi upp á kannski 150-200 kílómetra, en nýju Ford-bílar eru með 300-400 kílómetra, og einn þannig bíll er í notkun hér. Því er búið að leysa þetta vandamál í vetnistækninni. Það er búið að sanna að vetnistækni virki, eina sem er raunverulega eftir að leysa, er að koma verðinu á bílunum niður þannig að þeir geti keppt við hefðbundna bíla.

Guðmundur: Já einmitt, en bara verðið á vetninu?

Jón Björn Skúlason: Verðið á vetninu er sambærilegt miðað við 100 kílómetra akstur á vetnisbíl og 100 kílómetra akstur á bensínbíl og við gerum ekki ráð fyrir að í framtíðinni að vetni verði nokkuð dýrara. Þannig að í dag eyðir þú einhverju X-hlutfalli af þínum launum í að keyra bíl, í bensíni og í bílinn sjálfan. Við hugsum, við sjáum framtíðina fyrir okkur að það verði sama fyrirkomulag, þú eyðir jafn miklum peningum í samgöngur eins og þú gerðir þá. Hins vegar verðurðu 100% visthæfur og það er gríðarlegur munur.

Freyr: Og þétta er íslensk nýorka?

Jón Björn Skúlason: Já þetta er íslensk nýorka og ég tel að umræðan núna um gjaldeyrismál og annað slíkt, nú eru tækifæri og stjórnvöld eiga virkilega að gefa í núna, ég veit það eru ekki til miklir peningar en það er hægt að gera mjög margt án peninga, til dæmis móta stefnu innan fyrirtækja, visthæfa samgöngustefnu, það er hægt að nota vélahitara, taka strætó og hjóla það er ýmislegt hægt að gera sem kostar ekki mikla peninga og undirbúa okkur af fullu fyrir þá framtíð sem við sjáum að fari af stað eftir 2-3 ár.

Freyr: Á þessu málþingi sem þú varst bara að koma af Jón Björn, Íslenskt á tankinn - já takk, hver var, var einhver niðurstaða hjá ykkur?

Jón Björn Skúlason: Ég get ekki sagt að það sé nein niðurstaða, menn hafa áhyggjur að það vanti fé til verkefna og svo framvegis á allra næstu árum, ekki bara á Íslandi heldur í Bandaríkjunum og Evrópu og alls staðar vegna, það eru fleiri í sömu kreppu og við, að það er kannski, það sem menn hafa áhyggjur af, hægist eitthvað á þessu? Ég tel svo ekki vera vegna þess að Evrópa og Bandaríkin sjá fyrir sér að við erum að flytja mesta auð raunverulega í heimssögunni í dag til olíuframleiðsluríkjanna. Hvaðan er, hverjir eiga peninga í dag? Það eru Mið-Austurlönd og Rússland. Hvaðan koma þeir peningar? Þeir koma allir frá Evrópu og Bandaríkjunum með innkaupum á olíu og þetta á eftir að stóraukast í framtíðinni nema við spyrnum við fótum og ég tel tækifærin alveg umsvifalaust að stjórnvöld, sveitarfélög og við öll eigum að leggjast á eitt til þess að ýta undir vegna þess að ég er sannfærður um það að rafbílar og fleiri tegundir bíla verði komnir á markað mun fyrr heldur en kannski væntingar voru til um.

Freyr: Við erum að eyða milljörðum í bensín og olíu?

Jón Björn Skúlason: Ja við heyrðum líka einu sinni, nýlega, að N1 sagði við eigum 38 daga olíu ef við getum ekki leyst gjaldeyrismálin til að flytja inn olíu. Er það öryggiskerfi sem að við viljum búa við til framtíðar? Ég sem persóna - nei takk. Ég vil íslenskt á tankinn - já takk.

Freyr: Og það er ekkert mál, Jón Björn Skúlason hjá Íslenskri NýOrku, við erum búin að þá þegar búin að tala um þessa fornbíla og það er þessi Toyota Prius, menn eru að tala um þann bíl líka, það eru komnir bílar á götuna?

Jón Björn Skúlason: Já já já, þetta er allt að gerast og ég get sagt þér það að reynsla mín að keyra vetnisbíl er tær snilld.

Freyr: Og fleiri á leiðinni. Takk fyrir spjallið.

 

María
Fréttamannahrina
Við á Íslenskri NýOrku höfum sinnt allnokkrum fréttamönnum og sjónvarpstökuhópum undanfarið. BBC kom í júlí til að taka upp heimildaþátt um vetnisverkefni og vetnisbíla í íslensku samhengi. Tvö frönsk sjónvarpsgengi komu sömu vikuna í september og fylgdust með Eldingu, kennslu við RES skólann og tóku viðtöl við ráðherra og sjómenn. Kom annar hópurinn frá Thalassa, þætti um málefni hafsins á France 3 og hinn frá Arte.tv til að leita svara við spurningunni um það hvað geti komið í stað olíu. Al Jazeera hefur beðið um viðtal á næstunni og tveir sænskir blaðamenn eru væntanlegir um miðjan október. Eins og vant er hafa alþjóðlegu fréttamiðlarnir áhuga á orklumálum á íslandi og nýjungum í eldsneytismálum.

María
Nýjar greinar og skýrslur

Við viljum vekja athygli á að 6 nýjar greinar til útprentunar eru nú á vef okkar. Smellið á lituðu krækjurna í næstu setningum til að fá þær upp í pdf formi.  Skýrsla úr verkefni Elísabetar B. Lárusdóttur lýsir því hvernig rafdreifikerfi Reykjvaíkur er í stakk búið tiil að styðja við hleðslu á rafbílum. Nýr bæklingur birtist í april 2008 og gerir grein fyrir bæði nýjum verkefnum og hvað kom út úr þeim sem er lokið. Síðan er hægt að sækja   fréttabréf um árið 2007  sem reyndar er á ensku. Síðan mælum við með því að litið verði til greinar um nýtni vetnisvagnanna eins og hún var mæld og greind í Stokkhólmi um sams konar vagna og notaðir voru í Reykjavik. Sú grein er tengd inni á ECTOS skýrslurnar númer 14. Þessi rannsókn var miklu ítarlegri en sú sem fór fram í Reykjavík og gefur innsýn í hvaða hluta vetnisstrætisvagnanna má bæta í næstu kynslóð. Enn eina alþjóðlega grein sem unnin er upp úr verkefni Hjaltia Páls um staðarval fyrir vinnslu vetnis  á Íslandi er einnig að finna undir publications þar sem hún er á ensku.  Að lokum er mjög athyglisverð skýrsla sem tekin var saman innan SMART-H2 verkefnisins og lýsir viðhorfum til nýs eldsneytis á Íslandi.

María
Bílaprófanir á sumardaginn fyrsta

Rafbíll í prófunRáðstefna var haldin á vegum Vetnisfélags Norður Atlantshafsins og daginn eftir gangsett ljósavél um borð í Eldingu og fólki gefinn kostur á að reyna nýjar gerðir bíla. Allir atburðir gengu frábærlega vel og vill Íslensk NýOrka þakka fólki sem tók í bílana og sýndi mikinn áhuga með skynsamlegum spurningum. Til að skoða fyrirlestra er farið á NAHA síðuna.


María
Hvalaskoðunarbátur og bílar til sýnis

Ráðstefna North Atlantic Hydrogen Association (NAHA) um rafkerfi, stöðu tækninnar, tilraunir og niðurstöður verkefna á norðurslóðum skráning: camilla@icelandtravel.isRáðsetfnan verður 23. apríl hjá Orkuveitu Reykjavikur á Bæjarhálsi 1. Smellið hér til að sjá fyrirlesra og dagskrá þann 23.apríl.  Á sumardaginn fyrsta (24.apríl) verður vetnisefnarafala -ljósavél um borð í Eldingu tekin í notkun og auk þess tekur Nýsköpunarmiðstöð Íslands við kraftmiklum Ford Focus sem gengur fyrir vetni. Ráðsetfnugestir fá að koma með í bátsferðina.

Eldingin mun leggjast að Miðbakka framan við Kolaportið um kl 11 og þar verður umhverfisráðherra og fulltrúar borgarinnar og starfsmenn helstu samstarfsaðlia NýOrku í SMART-H2 verkefninu. Þegar skipið hefur farið sína fyrstu vetnisför verður opnuð bílasýning þar sem almenningi  gefst færi á að prófa ýmsa bíla sem hafa minni útblástur en eldri gerðir bíla en NýOrka bauð bílgreinasambandinu að vera með í kynningu bíla fyrir almenning. Þarna verður NýOrka með A-class rafalabíl frá Daimler. Nánari upplýsingar birtast á vegum Reykjavikurborgar. Um borð í skipinu er verið að koma upp sýningarrými í lestinni. Þar sést efnarafalinn sem er tengdur rafkerfi skipsins af Varmaraf hf og fræðsluefni um tæknina. Einnig hefur verið komið fyrir áfyllingarbúnaði á Ægisgarði sem hannaður og smiðaður er af Icelandic Hydrogen og Varmarafi.

Nú eru vetnisbílar á götum orðnir 12 en eins og kunnugt er eru engir strætisvagnar knúnir vetni lengur í Reykjavik. Vonandi verða þeir keyptir til landsins á næstu árum.

María Maack
Kvæði til hvatningar

 

Það sem er að gerast í dag!! 

Fyrir utan er allt fjólublátt

vegna fjólublárra geisla.

Ósonið eyðist smátt og smátt

því niðri er bílaveisla.

 

Við verðum að koma á einskonar sátt

notum vetnisbíla og stefnum í rétta átt.

Vistvæn skref eru gáfuleg í þessum efnum

hjólin við einnig nefnum.

 

Kalla á okkur pólitíkusarnir

„Þegar mannkynið eyðist verðum við löngu farnir“.

Þeir of lítið þessum málefnum sinna

það er almúginn sem ætlar að vinna.

 

Hafið, loftið og allt líf þar á milli

lætur yfir sig vaða af mengun.

Viljum við að mengun loftið fylli

vonandi notum við lífið sem við fengum.

 

Eftir: Hauk Björnsson 12 ára

 

 

 

 

NýOrku til mikillar ánægju hefur ungur maður sent okkur kvæði sem er skörp athugasemd við sinnuleysi nútímans gangvart mikilvægum umhverfismálum. Okkur er það heiður að fá að birta hér kvæðið og viljum við hvetja fleira ungt fólk til að gera slíkt hið sama. - Bestu þakkir Haukur!


María Maack
Fundur og sýning á visthæfum bílum í vor

Í vor mun Íslensk NýOrka standa fyrir fundi um vetni sem orkubera á norðlægum slóðum fyrir þá sem taka þátt í NAHA. Jafnframt verður haldin sýning fyrir almenning á bílum sem ganga á tilbúnu eldsneyti. Sýningin mun eiga sér stað á sumardaginn fyrsta. Bílasýningin verður á hafnarbakkanum og hafa menn brugðist vel við ósk um að sýna farartæki sem ganga á gasi, rafhlöðum og etanóli. Nánar um þetta síðar en skoðið einnig frétt á Reuters

Um leið verður nýja ljósavélin sem gengur fyrir vetni gangsett um borð í Eldingunni. Nánar verður sagt frá þessari uppákomu þegar nær dregur en sumardaginn fyrsta ber upp á 24. apríl í ár. Eins og kunnugt er vekur Reykjavíkurborg athygli á umhverfismálum á sumardaginn fyrsta.

SUGRE
Ný framleiðsluaðferð vetnis í sólarlöndum

 

 

Við viljum vekja athygli á því að í verkefninu SUGRE, sustainable green fleets hafa verið gefin út nokkur fréttabréf sem nú birtast á enska hluta heimasíðu okkar (sjá projects - ongoing projects og SUGRE) Ein frétt í þriðja fréttabréfinu vakti sérstaklega athygli okkar vetnisáhugamanna  og fylgir hún því hér með í íslenskri þýðingu: Gríski vísindamaðurinn, Dr. Athanasios Konstandopoulos, forstjóri Chemical Processes Engineering Research Institute, CERTH í Þessaloníu í Grikklandi  sem einnig er verkefnastjóri verkefnisins HYDROSOL, vann Descartes verðlaunin 2006.  Verðlaunin fólu í sér peninga að upphæð á 333.333€ auk sérstaks heiðursskírteinis og afhent var við sérstaka athöfn í Brussel 7. Mars 2007.

 

HYDROSOL teymið hefur þróað virkt yfirborðsefni sem klýfur vatn við um það bil 1000°C hita. Efnið er sett á postulíns-einingar sem sem svipar til svampa eða býkúpu í byggingu, á ensku: monolithic reactor en minnir á hvarfakúta í bílum. Þær eru alsettar smásæjum göngum sem fanga sólargeislana.  Yfirborð röranna eru þakin virku vatns-kljúfandi  efni sem gríska teymið þróaði en fleiri ever‘opskir samstarfsaðilar eru með í verkefninu. Hvatinn virkar því eins og rafgreinir, klýfur súrefnið frá en fangar vetnisgasið.  Þessi framleiðsluaðferð gæti haft feikileg áhrif á orku og hagkerfi heimsbyggðarinnar. Vonir eru bundnar við að þessi aðferð geti boðið hagkvæmara vetni með beinni nýtingu sólarorku og nánast engum koltvísýringsútblæstri.

Vonir eru bundnar við það að framleiðsla sólar-vetnis veiti fátækari svæðum heimsins mikla möguleika til að virkja sólarorku.  Lönd í Suður Evrópu gætu því treyst á staðbundnar orkulindir en enn sem komið er er uppfinningin á tilraunastigi.

 


María Maack
10 Vetnis-Príusar á götum borgarinnar

VistOrka afhenti notendum 10 nýja vetnisbíla í siðustu viku. Þetta eru 10 Toyota Prius tvinnbílar smíðaðir af Toyota í Japan. Fyrirtækið Quantum í Kaliforníu breytti þeim síðan þannig að þeir brenna vetni í stað bensíns, en virka að öðru leyti eins. Fyrirtækin sem fengu vetnisbíla núna voru: Orkuveita Reykjavíkur (4 bílar), bílaleigan Hertz (3 bílar) og Landsvirkjun (2 bílar). VistOrka mun jafnframt nýta einn af þessari gerð vetnisbíla. Almenningur getur þekkt vetnispríusana á því að þeir eru allir merktir kirfilega að aftan: VETNISBÍLL og á hliðunum stendur: VETNI VISTVÆNN ORKUGJAFI. Jafnframt eru bílarnir merktir með númeraplötunum H2 - 001, H2-002 og þannig áfram upp í H2 - 010.

Ökumennirnir fylla sjálfir á Príusana á vetnisstöðinni við Grjótháls. Þar hefur verið komið upp leiðbeiningum um það hvernig vetni er sett á tankana og í hverjum bíl liggja frammi almennar upplýsingar um bílinn. Stöðin var endurhönnuð að hluta og settur upp kortalesari til að þjónusta fólksbíla sem ganga fyrir vetni. Rekstur vetnisstöðvarinnar næstu árin verður í höndum Skeljungs í samstarfi við Shell Hydrogen.

 

Fyrstu vetnis-bílaleigubílar í heimi

Þátttaka bílaleigunnar Hertz eru ánægjuleg nýmæli í SMART-H2 verkefninu.  Þetta er í fyrsta sinn í heiminum sem almenningi og ferðamönnum gefst kostur á að leigja og nota vetnisbíl. Nú þegar hefur ákvörðun Hertz vakið talsverða athygli erlendis og birti REUTERS fréttastofan tveggja mínútna frétt um atburðinn. 

María
10 Vetnisknúnir Toyota Prius bílar afhentir íslenskum kaupendum

Fréttatilkynning, Irvine, California, 07.08.07        

VistOrka mun styðja frekari tilraunir með vetni á Íslandi enda hafa þær gengið vel á undanförnum árum.  DaimlerChrysler afhenti vetnisbíl með efnarafal nýlega á Íslandi og í dag fékk VistOrka 10 Toyota Prius vetnisbíla afhenta. Á myndinni eru frá vinstri: Hjalti Páll Ingólfsson, verkefnisstjóri, Jón Björn skúlason framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku, Alan Niedzweki forstjóri Quantum sem sá um að aðlaga bílana að notkun vetnis sem eldsneytis,  Þorleifur Finnsson, varaformaður stjórnar VistOrku og Hreinn Sigmarsson, flotastjóri Hertz

SMART-H2

  

VistOrka tók við bílunum við athöfn í höfuðstöðvum Quantum í bænum Irvine, Kaliforníu.  Þetta er stærsti áfanginn, hingað til, í verkefninu SMART-H2 (Sustainable Marine and Road Transport,- Hydrogen in Iceland) en það hófst fyrr á þessu ári.  Að þessu sinni eru kaupendur bílanna Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun og bílaleigan Hertz.  Vegna þátttöku Hertz gefst nú  almenningi í fyrsta skipti í heiminum  tækifæri á að aka vetnisbílum í vanalegri umferð. Einnig opnar þetta nýja möguleika fyrir ferðamenn í Reykjavík sem geta nú í fyrsta sinn ekið um götur borgarinnar án útblásturs gróðurhúsaloftegunda.  Þá er notkun vetnisbíla kjörin leið fyrir íslensk orkufyrirtæki til að minna á að á Íslandi er einstök raforkuframleiðsla sem  alfarið er byggð á  endurnýjanlegum og mengunarlausum orkugjöfum

Í byrjun árs 2008 afhendir DaimlerChrysler annan vetnisbíl til Íslands en markmið SMART-H2 verkefnisins er að sjá til þess að 30 vetnisbílar verði í umferð sumarið 2009.  Notkun vetnisbíla og nýting vetnis í ljósavél um borð í skipi eru talin mikilvæg skref í átt að þróun orkukerfa sem byggir eingöngu á endurnýjanlegum orkugjöfum. 


GLK
Fyrsti vetnisfólksbíllinn á Íslandi

Í dag var afhentur fyrsti vetnisfólksbíll á Íslandi.  Peter Froschle og Monika Kentzler  afhentu Friðriki Sophussyni forstjóra Landsvikrjunar og Guðmundi Þóroddssyni forstjóra Orkuveitunnar vetnisbíl frá DaimlerChrysler.  Bíllinn er af A-classa gerð og er efnarafalsbíll frá Mercedes Benz , hann verður í sameiginlegri notkun Orkuveitunnar og Landsvirkjunar.   Þessi áfangi er hluti af verkefni sem heitir SMART-H2 og er stefnt að því að flytja allt að 30 bíla til landsins á næstu tveimur árum.

Íslensk NýOrka og VistOrka hafa samið um að útvega fleiri vetnisbíla til viðbótar, af mismunandi gerð, annars vegar með brunahólfsvél og hins vegar með efnarafal.  Á afhendingunni, sem fór fram við Perluna í dag, voru hátt í 70 manns viðstaddir til að bera bílinn augum, þar á meðal starfsfólk Landsvirkjunar, Orkuveitunnar og Iðnaðarráðuneytisins.

Fréttatilkynninguna frá DaimlerChrysler má finna hér

Tryggve
Þorsteinn
 
Þorsteinn Ingi Sigufússon ráðinn forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
 
Dr Þorsteinn Ingi Sigfússon hefur verið ráðinn forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands en hún verður til við sameiningu Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins 1. ágúst næstkomandi.  Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra réð í starfið.
 
Ráðherra sagði við setningu Rannsóknaþings í morgun að hann sæi fyrir sér að framtíðaraðsetur Nýsköpunarmiðstöðvar yrði í Vatnsmýrinni í Reykjavík, en nýju stofnuninni er ætlað að starfa í nánu samstarfi við háskóla og atvinnulíf um allt land.
 
Þorsteinn Ingi Sigfússon er 53 ára, fæddur í Vestmannaeyjum 4. júní 1954. Hann lauk doktorsprófi í eðlisfræði frá Cambridge háskóla árið 1983 og hefur áratuga reynslu af tæknirannsóknum og nýsköpunarstörfum. Hann hefur unnið með nemendum sínum að hagnýtingu háskólarannsókna, sem m.a. hefur leitt til stofnunar 7 sprotafyrirtækja og Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.
Íslensk NýOrka er eitt þeirra sprotafyrirtækja sem Þorsteinn hefur komið að og er alveg ljóst að dyggilegt starf Þorseins Inga í vetnismálum hefur ýtt verulega undir þá aðþjóðlegu viðurkenningu sem fyrirtækið hefur hlotið í vetnisrannsóknum.
 
Þekking Þorsteins á tæknirannsóknum og nýsköpun hefur nýst vel á innlendum og alþjóðlegum vettvangi, m.a. í störfum fyrir iðnaðarráðuneyti en fyrir þess hönd hefur hann verið framkvæmdastjóri alþjóðlegrar nefndar um málefni vetnissamfélagsins. Þorsteinn Ingi hefur verið formaður stjórnar Rannsóknaráðs Íslands, stjórnarformaður Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands og setið í stjórnum nýsköpunarfyrirtækja.
 
Fyrir fjölbreytt störf sín hefur Þorsteinn Ingi hlotið fjölda viðurkenninga: Hann hlaut m.a. viðurkenningu Vísinda- og Nýsköpunarráðuneytis Rússlands í janúar 2006 og tekur laugardaginn 9. júní næstkomandi á móti alþjóðlegum orkuverðlaunum – Global Energy International Prize – í St. Pétursborg.
 
Þorsteinn mun koma til starfa í næstu viku og vinna að undirbúningi og stefnumótun fyrir hina nýju stofnun ásamt starfsmönnum Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins o.fl.


Þorsteinn Ingi Sigfússon hlýtur International Energy Globe verðlaunin

Íslensk NýOrka samgleðst Prófessor Þorsteini Inga Sigfússyni innilega yfir þeim verðskuldaða heiðri sem honum var nýlega sýndur fyrir óbilandi áhuga og vinnu við framþróun hugmynda og tækni fyrir vetnisnotkun.

VIÐTAL ÞORSTEINS INGA SIGFÚSSONAR PRÓFESSORS VIÐ FRÉTTABLAÐIÐ

Þorsteinn rekur forsögu þess að hann verði verðlaunaður allar götur aftur til áttunda áratugarins, þegar vetnisrannsóknir hófust við Háskóla Íslands. „Frumherji vetnisrannsókna á Íslandi er hann Bragi Árnason prófessor. Eftir að ég kom að skólanum og fór að vinna að þessu vildi ég nálgast þetta með nýrri hugsun og beitti ég mér fyrir stofnun sprotafyrirtækis sem heitir Íslensk NýOrka. Ég var stjórnarformaður NýOrku þegar við fórum út í þetta mikla verkefni með Daimler-Chrysler, Shell Hydrogen og Norsk Hydro og fengum strætisvagnana til Íslands. Þar nutum við mikillar hjálpar utanríkisþjónustunnar í undirbúningsvinnunni.  Í ársbyrjun 2003 var reist vetnisstöð við Vesturlandsveg og þá var kominn vísir að innviðum vetnissamfélags.“

Í kjölfar íslenska vetnisverkefnisins kom svo hópur borga í Evrópu og víðar Þorsteinn vísar hér til verkefnis sem fór fram í níu borgum (CUTE /STEP/ Hy:FLEETCUTE) Í verkefninu keyrðu þrjátíu og þrír strætisvagnar á vetni sem var unnið með mismunandi aðferðum allt eftir staðháttum í hverju landi. Síðan hefur leiðin verið greið í vetnisrannsóknum Þorsteins og félaga. „Íslenska verkefnið hefur leitt af sér alþjóðasamtök IPHE (International Platform for the Hydrogen Econmy) sem ná nú til þriggja fjórðu hluta mannkyns.“

Svona verkefni þarfnast vinnu margra einstaklinga og vil ég sérstaklega þakka Jóni Birni Skúlasyni, Maríu Maack og fleirum fyrir frábæra vinnu við framkvæmd málsins.  Bakhjarlar verkefnisins í félaginu Vistorku eru einnig lykilaðilar, nánast allir leiðandi aðilar úr orkugeiranum. Nú fer Bjarni Bjarnason frá Landsvirkjun með formennsku í NýOrku og er málið í styrkum höndum.

Vetnisrannsóknir hafa átt huga Þorsteins síðustu áratugi. Hann líkir þessum áhuga við platónskt ástarsamband og getur auðveldlega rifjað upp hin fyrstu kynni. „Ég kynntist vetni fyrst í Járnblendifélaginu þar sem ég var við rannsóknir. Þar veltum við fyrir okkur því hvernig vetni úr raka í andrúmsloftinu varð hluti af málmkökunni með ýmsum afleiðingum. Síðan fór ég að hugsa hvort ekki væri hægt að virkja betur eiginleika vetnisins og láta það vinna sem orkubera.  Ég hef unnið með mörgum stúdentum í framhaldsnámi sem eru og verða alltaf uppsprettan í háskólasamfélagi og það veitir mér mikla gleði að vinna með þeim. Eiginlega er starfið í Háskólanum síungt vegna þessa frábæra fólks.  Vetni og ég erum eiginlega í platónsku ástarsambandi!  Rannsóknafrelsið í Háskólanum er lykillinn að árangri í vinnu minni. Kristín Ingólfsdóttir rektor hefur góðan skilning á þessu samspili.

Í seinni tíð er ég farinn að velta meira fyrir mér hvernig við getum notað ferli vetnis sem unnið er úr vatni til þess að minnka útsleppi gróðurhúsagasa á Íslandi og þess vegna hef ég beint sjónum mínum að þeim áhrifum sem minnkandi notkun jarðefnaeldsneytis gæti haft á orkuhreinleika okkar. Það er heillandi framtíðarsýn að Ísland gæti orðið fyrsta land í heiminum sem byggði eitt hundrað prósent á endurnýjanlegri orku.

Vetnið tamið

„Vetni er minnsta atómið í alheiminum og mjög hvarfgjarnt; girnist rosalega að komast í samband við önnur efni. Smæð þess endurspeglast líka í því rými sem það tekur í geymslu á formi gass segir Þorsteinn.   Ég er einmitt að skrifa bók sem út mun koma samtímis  í Oxford og Reykjavík í haust á ensku og íslensku og er vinnuheiti hennar “Vetnið tamið”. 

Hann tekur dæmi um tamninguna af verkefni sem Íslendingar stóðu að um vetnisdrifna strætisvagna. „Þriðjungur af þaksvæði  vetnisvagnanna, sem keyrðu um Reykjavík, var fylltur af vetnisflöskum sem voru undir 350 loftþyngdar þrýstingi. Það þýðir það að loftþrýstingurinn í kringum okkur er margfaldaður 350 sinnum inni í stálflöskunum. Með þessu gátum við farið á þriðja hundrað kílómetra í einni ferð. Af því það er svo miklu erfiðara að þjappa vetninu saman er  það, sem orkugjafi, miklu rúmfrekara efni en til dæmis tunna af díselolíu miðað við orkuinnihald. Þetta er ein af áskorunum vetnissamfélags“

Umrædd þjöppun vetnis fer fram í Íslensku vetnisstöðinni  „Við tökum inn vatn og rafmagn og kljúfum vatnið með rafmagninu í svokallaðri rafgreiningu. Við leysum úr læðingi súrefnið og sleppum því út í andrúmsloftið og þjöppum saman vetninu. Þegar þú aftur keyrir strætisvagninn læturðu vetnið hvarfast við súrefni loftsins og skilar aftur rafeindinni,  rafmagninu sem fór í að kljúfa það. Þetta rafmagn knýr svo bílinn. Þarna er hringrásin – þarna er endurnýjanleikinn“

Ég stend á öxlunum á risum.

Rafvæðing Íslendinga er merkileg og að henni hafa starfað merkir brautryðjendur, segir Þorsteinn. „Þegar Íslendingar fóru að ýta burtu kolefnisorkugjöfunum þá byrjuðu þeir á því að henda burtu öllum kolum úr Reykjavík og hituðu borgina með rafmagni. Menn eins og Jóhannes Zoega fyrrum hitaveitustjóri eru einn af jöfrum íslenskrar orku ásamt mönnum á borð við Gunnar Böðvarsson og Steingrím Jónsson, svo ég nefni aðeins nokkur nöfn úr stórum hópi. Ég verð að segja eins og Ísak Newton forðum: í framförum vísindanna stendur maður á öxlunum á risum sem rutt hafa brautina.

  Samhliða hitaveitunni varð landið rafvætt og nú er svo komið að nær allt íslenskt rafmagn er framleitt með endurnýjanlegri orku. Við erum nú sú þjóð sem mest notar hlutfallslega af endurnýjanlegri orku í heildarorkukerfi sínu. Það eina sem stendur eftir núna er þessi mikli innflutningur á olíu og bensíni, sem gerir það samt að verkum, ásamt stóriðjunni, að hvert mannsbarn er að skilja eftir sig kannski um ellefu tonn af koltvísýringi á ári. Þetta skapar að vissu leyti mótsögn í hreinleika íslenskrar orku. Vetnisvæðing er þáttur í því að spyrna gegn þessu. Að skipta út olíu fyrir innlenda orkugjafa,“ segir hann.

Framlag Íslands

Rafgreining vatns á sér langa sögu eða allt frá árinu 1800 og efnarafallin var uppgötvaður um 1840 og rannsóknir af þessu tagi  eru stundaðar um víða veröld. Sérstaða íslenskra verkefnisins segir Þorsteinn vera þá að „hér á Íslandi tökum við alla þættina saman í eitt orkukerfi. Við búum til stöð og látum hana skapa vetni, látum vetnið knýja vagna og skoðum síðan allt heildarkerfið- orkuna inn og orkuna út- og það er íslenska framlagið í vetnismálum að þessu leyti.  

Hér á landi er einnig tækifæri til athugana á samspili jarðhita og vetnis sem ég hef unnið mikið að ásamt nemendum mínum.  Sem dæmi um þessi verkefni er rannsókn á nýtingu á gasi úr borholum, sem í sumum tilvikum inniheldur töluvert magn af vetni og vann t.d. til Nýsköpunarverðlauna Forseta Íslands í fyrra.  Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur reyndar verið frábær liðsherji í útrás íslensku vetnisverkefnanna.  

Brennisteinsvetni sem einkennir hveragas hefur verið eitt af viðfangsefnum okkar. Nú í sumar lýkur íslenskur stúdent, Hallmar Halldórsson, doktorsverkefni hjá okkur á sviði samspils varma og vetnisgeymslu. Hann hefur þróað aðferð undir minni leiðsögn sem felur í sér að geyma vetni í málmsvampi og nýta það til þess að skapa þrýsting. Hugmyndir mínar um að temja vetnið í málminum sem einmitt voru mér hugleiknar í sambandi við Járnblendifélagið sem ég nefndi upphaflega, eru að verða að veruleika í verkefni Hallmars.

Ég flétta saman vetnisfræðum og íslenskum raunveruleika og spinn svo smám saman verkfræði jarðhita og vetnis. Fyrir um áratug keyrði ég litla vél sem notar varmaorku heits hitaveituvatns til þess að kljúfa vatn með notkun svokallaðs varmarafmagns.  Af öllu þessu sprettur reynsla sem eykur við forskot okkar Íslendinga sem sérfræðinga í öllu er viðkemur jarðhita og afleiddum greinum verkfræði.

Menn spyrja mig oft að því hvað það hafi verið í íslensku aðferðafræðinni sem heillað hafi alþjóðasamfélagið?  Ég nefni eitt dæmi. Það er stundum kallað PPP-fyrirkomulag, Public-Private-Partnership. „Með NýOrku var sameinuð þekking Háskóla Íslands við innlend og erlend orkufyrirtæki og íslenskra stjórnvalda þar sem ég verð að hrósa iðnaðarráðherrum okkar og þeirra ráðuneytum. Án allra þessara aðila hefði þetta ekki orðið til. Það þarf að steypa saman mörgum ólíkum aðilum til að leysa svona verkefni. Það er ánægjulegt að sjá hvernig verkefni okkar hafa verið hafin yfir stjórnmálaágreining. Mér finnst eins og íslenskir stjórnmálamenn á víðu bili grundvallaskoðana séu sterklega hlynntir sókn okkar í nýja þekkingu og nýtt orkusamfélag. Það er flott veganesti!

„Þetta fyrirkomulag okkar um samvinnu stjórnvalda og fyrirtækja hefur orðið módel fyrir fjölmörg lönd, til dæmis Bandaríkin. Þegar Bandaríkjamenn beittu sér fyrir stofnun International Partnership for the Hydrogen Economy, sögðu þeir að þeir ætluðu að einbeita sér að því að vera með public-private-partnership. Þeir báðu Ísland um að leiða framkvæmdanefndina, sem ríkisstjórnin fól mér við stofnun IPHE.

Verkfræði snýst um að taka það besta og raða því  saman til að skapa nýtt fyrirbæri, nýtt kerfi. Það er það sem við höfum verið að gera. Við höfum innleitt nýjan orkubera í samfélag okkar og skoðað hvernig hægt væri að nýta hann sem best“

Landið okkar er kjörinn staður fyrir þessar tilraunir með nýja orkuinnviði. Ég skal taka lýsandi dæmi sem er vetnisvæðing hringvegarins. „Þessi vegur er um 1500 kílómetra langur. Þegar við förum að nálgast það að hafa vetnisstöðvar með 200 kílómetra millibili þá verður unnt að segja að eyjan Ísland hafi lágmarks þéttleika slíkra stöðva til þess að gera vetnisvögnum kleift að fara um landið án hindrana.  Þetta þýðir að með sjö eða átta stöðvum við hringveginn þá er perlufestin fullgerð. Nýtt orkudreifingarkerfi hefur orðið til með miklu minni fyrirhöfn en flestar þjóðir þyrftu að hafa. Á þessari leið er verkið nú“ segir Þorsteinn stoltur.

„Íslenska verkefnið sáum við fyrir okkur sem 50 ára verkefni í upphafi, en ég sé fyrir mér að bílaframleiðendur í Japan verði farnir að framleiða vetnisbíla á viðráðanlegu verði eftir svona tvö til þrjú ár.“

Íslendingurinn pantaður í Moskvu.

Verðlaunin frá Rússlandi komu mér skemmtilega á óvart. Fyrir nokkrum vikum hafði Kristín Árnadóttir skrifstofustjóri borgarstjóra samband við mig og tjáði mér að farin hefði verið undirbúningsferð vegna ferðar Vilhjálms Þ. Vihjálmssonar borgarstjóra til Moskvu og að þá hefðu menn í Moskvu spurt sérstaklega um Prófessor Sigfússon, hvort hann kæmi ekki með!  Ég tók því vel en var satt best að segja undrandi á þessum áhuga. Seinna kom svo í ljós að aðilar rússnesku vísindaakademíunnar hefðu í hópi sinna fjölmörgu tilnefninga tilnefnt Íslendinginn til Globe verðlaunanna.

Í fyrradag var svo hringt frá Moskvu og ég beðinn um að vera við símann að morgni 18. apríl þar sem hringt yrði til mín. Framhaldinu kynntist ég svo í gær, það var stór dagur fyrir mig og íslenska rannsóknasamfélagið.

 

Maria Maack
SMART-H2

Sjáfbærar samgöngur til lands og sjávar

Nú er lokið fyrsta tilraunarskrefi Íslenskrar NýOrku/VistOrku með vetni og hið næsta, SMART-H2 að hefjast. Tilraunaakstri vetnisvagnanna þriggja lauk fyrir nokkrum dögum. Niðurstöður voru mikilvægar og hafa nýst til að fleyta tækninni fram fyrir næstu kynslóð vagna, sem væntanleg er árið 2008. Innlendir og erlendir samstarfsaðilar lýst yfir mikilli ánægju með árangur verkefnisins og umgjörðina á Íslandi. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort nýta eigi vagnana lengur í umferð en Evrópusambandið styrkir ekki lengur verkefnið. Búnaður vagnanna í Reykjavík er úreltur, varahlutir í þessa kynslóð eru ekki framleiddir  og viðhald því erfiðleikum bundið. Þó hefur verið ákveðið að varðveita einn vagnanna til fræðslu á Samgöngusafninu á Skógum. Haldinn var blaðamannafundur í Orkustofnun og útbýtti NýOrka kynningarglærum um málið.
 
Með styrkingu VistOrku hefur stjórn fyrirtækisins ákveðið að byggja á þeim vetnisverkefnum sem Íslensk NýOrka hefur verið að vinna að hingað til. Hið nýja verkefni kallast SMART-H2 (e. Sustainble Marine and Road Transport, Hydrogen in Iceland). Markmið þess er að setja 20-30 vetnisbíla í akstur og vetnisljósavél um borð í hvalaskoðunarbát. Viðamikill hluti SMART-H2 eru rannsóknir sem munu bæta við þá þekkingu sem aflað var í strætisvagnaverkefninu. Hér er fyrst og fremst átt við þekkingu varðandi vinnslu og dreifingu vetnis, hagræna, félagslega sem og umhverfisþætti við notkun vetnis í almennri umferð. Tilgangurinn er svo að nýta þessar upplýsingar til samanburðar við annað eldsneyti.
 
Hingað til hafa ekki verið gerða tilraunir með efnarafala á sjó. Til öryggis er byrjað á því að  nýta fyrst vetni eingöngu í ljósavél báts. Mikilvægt er að auka þekkingu og reynslu á slíkri notkun, þar sem umhverfið er vott og salt, - rafkerfi geta truflast af hvortu tveggja, efnarafali breytir vetni í rafmagn. Þessi hluti verkefnisins er því mikilvæg tilraun og þess má geta að stefnt er að hönnun og ísetningu kerfisins hérlendis og gæti stóraukið vísinda- og tækniþekkingu landans á þessu sviði.
 
VistOrka hefur áhuga á að tengja niðurstöður verkefnisins við aðrar rannsóknir til að fá sem bestan samanburð á milli vistvæns eldsneytis og farartækja. Hér má benda á notkun metans, rafmagns (á rafgeymum), tvinntækni og jafnvel etanóls. Stefna VistOrku er að auka notkun á vistvænum orkuberum og farartækjum sem mest. Orkuveita Reykjavíkur hefur ákveðið að helmingur alls bílaflota fyrirtækinsins verði vistvænn í árslok 2013. Í þessu sambandi vill VistOrka ná inn sterkum samstarfsaðilum til að niðurstöður verkefnisins gefi sem gleggsta mynd af stöðu vistvænna farartækja og orkubera og stuðla þannig að stefnumótun stjórnvalda á þessu sviðið til framtíðar.
 
Verkefnið verður eitt stærsta verkefni sinnar tegundar í heiminum og eina verkefnið sem vitað er um að tilraunakeyrir bæði vetnisbíla og vetnisvél í skipi.


MHM
kynning GM á vetnismöguleikum Íslands

Eins og sumum rekur minni til kom General Motors með vetnisbíl til landsins í maímánuði. Nú hafa fréttir af atburðinum ratað inn á netið. Hér er hægt að skoða viðtöl við Valgerði Sverrisdóttur, Þorleif Finsson hjá Orkuveitu Reykjavikur og Jón Björn Skúlason. Á næstunni er von á viðtölum í National Geography og fleiri þekktum tímaritum um vetnisverkefnin og orkumál á Íslandi.

 

 

 

http://www.hydrogenforecast.com/pathways/index.html


Stofnfundur NAHA
Í gær var stofnfundur NAHA (North Atlantic Hydrogen Association) haldinn í Nuuk á Grænlandi, en samtökin eru stofnuð að frumkvæði Íslenskrar NýOrku. Þar koma saman fulltrúar ýmissa aðila frá ríkjunum við norðanvert Atlantshaf sem á einn eða annan hátt tengjast nýtingu vetnis. Nánari upplýsingar má fá á vefsíðu NAHA.


Vetni um víða veröld

Þó að Íslendingar séu vissulega í fararbroddi hvað varðar vetnisvæðingu í heiminum fer því fjarri að ekkert sé að gerast annarsstaðar í þessum málum. Fjöldi rannsóknar- og tilraunaverkefna er í gangi um heim allan, og hér er örstutt lýsing á nokkrum af þeim stærstu:

Hydrogen Highway í British Columbia í Kanada er samstarfsverkefni nokkurra kanadískra fyrirtækja á sviði vetnis og efnarafala og er eins konar regnhlíf yfir fjölda vetnistengdra verkefna á svæðinu. Verkefnin snerta á öllum þáttum vetnisvæðingarinnar; framleiðslu með ýmsum aðferðum, dreifingu, áfyllingu, og notkun í ýmiskonar tækjum, allt frá vasaljósum til strætisvagna. Þess er m.a. vænst að vetnistækni verði mjög sýnileg á vetrarólympíuleikunum sem haldnir verða í Vancouver árið 2010.

Scandinavian Hydrogen Highway Partnership er samstarfsverkefni HyNor í Noregi, HyFuture í Svíþjóð og Hydrogen Link í Danmörku með þann tilgang að byggja upp net vetnisstöðva í Skandinavíu. Í upphafi er lögð áhersla á leiðina frá Stavanger til Osló í Noregi (það verkefni var þegar í gangi á vegum HyNor), og þaðan í gegnum Svíþjóð alla leið til Jótlands í Danmörku. Seinna meir er svo ætlunin að útvíkka netið til fleiri svæða.

Evrópusambandið stendur nú fyrir stærsta vetnisstrætisvagnaverkefni í heimi, HyFLEET:CUTE, sem Íslensk NýOrka á m.a. aðild að. Yfir 40 strætisvagnar eru í umferð í 9 evrópskum borgum auk Perth í Ástralíu og Peking í Kína. Vetnisstöðvar voru byggðar í hverri borg þar sem vetnið er ýmist framleitt á staðnum (með rafgreiningu eða úr gasi) eða flutt annarsstaðar frá með tankbílum. Þannig fæst reynsla á vagnana í mismunandi loftslagi og á fjölbreyttum leiðum.

California Fuel Cell Partnership er samstarfsverkefni 31 aðila, þ.á.m. bílaframleiðenda, olíufyrirtækja, ríkisstofnana og vetnistæknifyrirtækja um að koma vetnisfarartækjum á götur Kaliforníu. Fjöldi áfyllingarstöðva hefur verið byggður og fjöldi bíla af öllum stærðum er í umferð. Stjórnvöld í Kaliforníu hafa mjög skýra og framsækna stefnu hvað varðar umhverfisvæn ökutæki og er ljóst að sú mikla þróun sem þar hefur átt sér stað mun halda áfram um ókomna tíð.

Í Japan stendur ríkisstjórnin fyrir viðamiklu verkefni, Japan Hydrogen & Fuel Cell Demonstration Project. Níu vetnisstöðvar, sem prófa mismunandi tækni til vetnisframleiðslu, voru byggðar í nágrenni Tokyo til að auðvelda japönskum bílaframleiðendum að þróa vetnisbíla. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, bílarnir hafa tekið miklum framförum á síðustu árum og ekkert bendir til þess að sú þróun eigi eftir að hægja á sér á næstunni. Líklegt má telja að fyrstu skrefin í fjöldaframleiðslu vetnisbíla verði stigin í Japan á næstu árum.

Í Kína eru einnig í gangi metnaðarfull verkefni. Nýlega hófst sameiginlegt verkefni í Shanghai og Peking þar sem 6 vetnisstrætisvagnar aka í hvorri borg. Að auki stefnir Shanghai að byggingu 10 vetnisstöðva til að anna eftirspurn 100 strætisvagna og 1000 bíla sem eiga að vera komnir í umferð fyrir heimssýninguna sem þar fer fram árið 2010. Öll þróun og framleiðsla til verkefnisins mun fara fram í Kína, en landið á langa sögu í vetnisrannsóknum.


Afkolun

Orðið afkolun (carbon sequestration) er notað yfir ferli sem fjarlægja kolefni úr andrúmsloftinu. Ljóstillífun er náttúrulegt dæmi um slíkt ferli sem fangar kolefni bæði á landi sem og sjó. Í dag er hins vegar svo komið að mun meiri koltvísýringur (CO2) er framleiddur í heiminum en unnt er að fanga og vinna, og veldur þetta auknum gróðurhúsaáhrifum. Með urðun koltvísýrings er ætlunin að draga úr loftslagsbreytingum með því að fanga koltvísýring frá t.d. orkuverum og eldsneytisiðnaði og geyma hann á öruggan hátt í stað þess að hleypa honum beint út í andrúmsloftið. Þetta getur haft mikil áhrif á vetnisvæðingu í heiminum, því á flestum stöðum er einfaldast og ódýrast að framleiða vetni úr gasi og kolum með aðstoð vatnsgufu (steam reforming), en það hefur í för með sér töluverða koltvísýringslosun. (Mynd (c) ECN, www.ecn.nl)

Meðal leiða sem talið er að nota megi til að geyma koltvísýringinn er að dæla honum niður í olíu- og gaslindir, þar sem hann hefði þá aukaverkun að þrýsta olíunni eða gasinu upp á við og gera þar með vinnslu þess auðveldari. Á sama hátt hafa verið gerðar tilraunir með að binda hann í kolalögum, þar sem hann losar um leið um metangas sem þar er bundið fyrir og mætti þá vinna. Önnur leið, sem hefur þó engar virðisaukandi hliðarverkanir, er að binda koltvísýringinn í saltmyndunum djúpt í jörðu. Slíkar myndanir hafa þann kost að vera mjög algengar og geta tekið við miklum koltvísýringi. Annarskonar jarðlög eru auk þess í skoðun hvað þetta varðar. Einnig eru uppi hugmyndir um að dæla koltvísýringi út í hafið á miklu dýpi þar sem það gæti leysts upp eða, ef dýpið er nógu mikið, sokkið til botns og myndað efnasambönd þar.

Nánari upplýsingar um afkolun má t.d. fá hjá bandaríska orkumálaráðuneytinu og norsku umhverfisverndarsamtökunum Bellona.


Morgunblaðið
VETNISVÆÐING OG GRUNDVALLARSPURNINGAR

19. júlí birti Morgunblaðið eftirfarandi leiðara:

Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku, sem stendur fyrir tilraunum með vetnisknúin farartæki á Íslandi, segir í Morgunblaðinu í gær að möguleg næstu skref í þeim tilraunum séu tvenns konar. Annars vegar að hingað til lands kæmu vetnisknúnir fólksbílar, sem mætti prófa við íslenzkar aðstæður. Hins vegar yrði sett vetnisvél um borð í bát.
Tilraunir með vetnisknúna strætisvagna í Reykjavík hafa gefið góða raun. Ef mönnum er alvara með að leitast við að skapa á Íslandi fyrsta "vetnissamfélag" heims, er nauðsynlegt að taka næstu skref. Takist að vetnisvæða annars vegar bílaflota og hins vegar skipa- og bátaflota Íslendinga á komandi árum og áratugum er til mikils unnið, því að hvor um sig tekur til sín um 40% af allri olíunotkun innanlands.
Jón Björn segir að til þess að taka megi næstu skref verði opinberir aðilar að leggja meira fé til tilraunanna. Væntanlega hefur verið gengið út frá því frá upphafi við stefnumótun ríkisstjórnarinnar, sem stefnir að "frekari áföngum í vetnisvæðingu þjóðarinnar" að fjárfest yrði í þeim rannsóknum, sem nauðsynlegt er að gera í samstarfi við erlenda bíla- og vélaframleiðendur til að vetnisvæðingin geti gengið eftir. Stuðningur opinberra aðila hér á landi verður að vera nægilegur til þess að þau alþjóðlegu stórfyrirtæki, sem hafa séð sér hag í samstarfi við Íslendinga, leiti ekki frekar annað, þar sem stjórnvöld eru hugsanlega reiðubúin að leggja meira af mörkum.
Ísland er eitt fárra landa í heiminum, sem eiga raunhæfa möguleika á vetnisvæðingu hagkerfisins vegna hinna miklu endurnýjanlegu orkulinda okkar, sem hægt væri að nota til að framleiða vetni með rafgreiningu. Ávinningurinn af vetnisvæðingunni væri m.a. að mengun og útblástur gróðurhúsalofttegunda myndi minnka. Ísland gæti öðlazt ákveðið samkeppnisforskot í samkeppni við hagkerfi, sem yrðu að reiða sig á olíu. Og ætla má að ímynd Íslands sem lands hreinleika og gæða myndi enn styrkjast, ef meira og minna öll orka, sem landsmenn notuðu, kæmi úr endurnýjanlegum orkulindum. A.m.k. væri andstæðan töluverð við t.d. Ástralíu, þar sem stjórnvöld boða nú stóraukinn útflutning á kolum, gasi og olíu, auk virkjunar kjarnorku - og reyndar líka sólarorku - til að fullnægja hraðvaxandi orkuþörf Asíuríkja á borð við Indland og Kína.
Það er því full ástæða til að stefna áfram að vetnisvæðingu. Ákveðnar grundvallarspurningar koma hins vegar upp vegna þessarar stefnu, sem ástæða er til að stjórnvöld fari að leita svara við. Gizkað hefur verið á að álíka mikla orku og framleidd verður í Kárahnjúkavirkjun þurfi til að framleiða vetni fyrir bíla- og skipaflota Íslendinga. Hvar og hvernig á að virkja þá orku? Á það að gerast með vatnsafls- eða jarðvarmavirkjunum? Verður meiri samstaða um virkjanir til þeirra nota en vegna stóriðju? Getur verið að ástæða sé til að nýta umhverfisvæna virkjunarkosti fremur til vetnisframleiðslu en til álframleiðslu? Ef alvara er að baki stefnunni um vetnisvæðingu, þarf að leita svara við þessum spurningum og fleirum.

Íslensk NýOrka þakkar MBL fyrir að hafa vakið máls á mikilvægu málefni


GM kynnir fjöldaframleiðslu vetnisbíla 2010

General Motors hefur verið undanfarna daga með vetnisbíl í Reykjavik. Tilgangur með komu fulltrúa GM hingað er að vekja athygli á því að fyrirtækið hyggst setja fólksbíla í framleiðslu og bjóða þá á samkeppnishæfu verði árið 2010. Því ríður á að orkufyrirtæki verði samhliða tilbúin að bjóða vetni þeim ökumönnum sem vilja vera á vetnisbílum. Bíllinn, HydroGen3 verður einungis sýndur blaðamönnum hérlendis í þetta sinn. Jafnframt verða haldnir  fundir með erlendum fréttamönnum fram á fimmtudag. Búast má við að fjallað verði um bílinn og heimsóknina í íslenskum fjölmiðlum sem og erlendum.

En munið að strætisvagnarnir þrír verða teknir úr umferð í árslok 2006 og lýkur þar með tilraun með akstur vetnisvagnanna, en þeir eru einu vetnisfarartækin á götum Reykjavíkur enn sem komið er.


MHM
Fræðsluefni á íslensku

Margmiðlunarmyndin Vetni, hreint orkuferli er nú í uppsetningu á Skólavefnum. Fyrirtækið samdi um að skólavefurinn sæi um að koma efninu á aðgengilegt form fyrir alla skóla og er það ánægjulegt. Það er einnig hægt að kaupa hreyfimyndina (sem þá birtist bæði á íslensku og ensku) á diski frá okkur, verð 3735 með VSK.

Leshefti hefur verið sett á vefinn okkar ( Vetni, orkuberinn hreini) undir Útgefið efni!! En smellið á titilinn og þá kemur heftið upp á skjáinn. Gjörið svo vel og notið að vild, en sendið athugasemdir við efnið, spurningar nú eða viðbætur til Maríu Maack!

MHM
Fréttaskot á vefnum frá 3. maí kl 13.16

Nýja umfjöllun er hægt að skoða á:

www.msnbc.msn.com/id/3033509


JBS
Hátt bensínverð – vistvænt sóknartækifæri

 

Grein sem beðið var um að yrði birt í Morgunblaðinu 20. apríl

Að undanförnu hefur stóraukist umræðan um hátt bensínverð. Bensínverð hefur reyndar verið frekar lágt hérlendis undanfarið vegna sterkrar stöðu íslensku krónunar. Nú hins vegar fer saman hækkandi heimsmarkaðsverð og veiking krónunnar. Ólíklegt verður að teljast að heimsmarkaðsverð muni lækka mikið á næstu árum, þó erfitt sé að spá fyrir um verðbreytingar, sérstaklega í ljósi þess að Bandaríkjamenn brenna 30% af öllu því jarðefnaeldsneyti sem brennt er á degi hverjum og fyrri hækkanir hafa sýnt að þegar bensínverðið er komið yfir 70 dollara tunnan, líkt og í dag, dregur úr notkun í Bandaríkjunum. Jafnvel þótt olíuhreinsunarstöðvum fjölgi aftur má þó gera ráð fyrir að olíuverð muni hækka um ókomna framtíð þar sem ekki er um endurnýjanlega auðlind að ræða og vegna þess mikla pólitíska ójafnvægis sem ríkir á helstu olíuvinnslusvæðum.

 

Vistvænt innlent eldsneyti.

 

Ég er fullkomlega sammála formanni Efnahags- og viðskiptanefndar, Pétri Blöndal, að ekki getur hið opinbera lækkað álögur á olíu til að lækka verðið. Það ætti frekar að hvetja til betri nýtingar, notkun sparneytnari bíla og almenningssamgangna eða samaksturs með vinum. Það sem er hins vegar mikilvægast þegar til lengri tíma er litið er nýting á innlendum auðlindum til eldsneytisframleiðslu. Nú þegar er bæði vetni og metan sem unnið er hérlendis nýtt sem eldsneyti á farartæki. Tækifærin á þessum sviðum aukast jafnt og þétt en kostnaður við t.d. vetnisbíla er enn talsvert hærri en notkun á hefðbundinni olíutækni. Olían þarf hins vegar ekki að hækka mikið til að vetni verði samkeppnishæft og gera áætlanir ráð fyrir því að vetni geti orðið samkeppnisfært á Íslandi eftir 10 ár ef heimsmarkaðsverð á olíu þróast eins og undanfarin 2-3 ár. Ljóst er að talsverðan undirbúning þarf til að nýtt elsneyti geti tekið við og skynsamlegt að nota tímann vel til að breytingarnar geti gerst án áfalla. Fjölga þarf vetnisverkefnum í anda tilraunaaksturs vetnisstrætisvagnanna, sem vakið hefur heimsathygli. Til að verkefni geti farið af stað og skilað marktækum árangri þarf að auka fjármagn til slíkra rannsókna. Auknar tekjur af hækkandi bensínverði er hægt að nýta til framrásarinnar.

 

1-3 milljónir á dag

 

Bensínverð hefur hækkað umtalsvert á síðustu vikum og þar af leiðandi hafa tekjur ríkissjóðs aukist. Ef aðeins er horft á auknar tekjur af innheimtu VSK þá fær ríkissjóður um 1 kr fyrir hverjar 4,50 kr sem bensínverðið hækkar. Bensín- og díselsala til bifreiða á Íslandi er að meðaltali tæp milljón lítrar á dag. Bensínverð hefur hækkað um 10-14 kr frá því um áramót og hafa því tekjur ríkisjóðs aukist um 1-3 milljónir á dag vegna þessara hækkana eða um 350-1.000 milljónir á ári. Hægt væri að eyrnamerkja hluta af þessum auknu tekjum til vistvænna verkefna sem miða að því að auka hlutdeild innlends eldsneytis til framtíðar.

 

 

                                                Jón Björn Skúlason

                                                Framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku

MHM
Skýrslur frá ECTOS

Skýrslurnar úr ECTOS hafa verið gefnar út. Í heild má segja að tilraunaaksturinn með vetnisvagnana hafi tekist afar vel. Það sem við höfum lært er jafnvel enn fleira en kemur fram í skýrslunum. Sem stendur eru vetnisvagnarnir enn í tilraunaakstri og reynt verður að reka stöðina á hagkvæmari hátt, en ennþá er dýrt að reka kerfið með svo fáum farartækjum þegar reka þarf stöðina langt undir getu. En aðalatriðið er að það gengur vel og öll vandkvæði hafa verið leyst farsællega.



Ljósmyndir og fleira til sölu!

Íslensk Nýorka býður til sölu kennsluhefti, ljósmyndir og gagnvirku hreyfimyndina "Vetni - hreint orkuferli" sem er skemmtilegt og fræðandi margmiðlunarefni m.a. um framleiðslu vetnis og tengsl þess við vatn og orku.  Allar ljósmyndirnar í myndasafninu hér á vefnum eru til í hárri upplausn og miklum gæðum og kosta 15.000 IKr stykkið.

Hreyfimyndin, sem unnin var í samvinnu við Gagarín, hefur verið send öllum grunn- og framhaldsskólum en hægt er að kaupa hana fyrir 2000 IKr. Útskýrt er með íslensku tali (einnig hægt að velja um enskt tal) og sýnt á myndrænan hátt hvernig vetni er framleitt úr vatni með endurnýjanlegum orkugjafa, hvernig efnarafali vinnur, hvernig vetni er geymt og gerð grein fyrir efnafræðinni að baki tækninni. Efnið hentar bæði almenningi og nemendum í skólum. Sjá má skjámyndir hér. Góða skemmtun!

Skrifið tölvupóst á maria.maack@newenergy.is ef þið viljið kaupa ljósmynd eða hreyfimyndina. Í tölvupóstinum þarf að koma fram fullt nafn, heimilisfang og ef ætlunin er að kaupa ljósmynd þarf að koma fram skráarnafn hennar (sýnilegt fyrir ofan myndina í myndskoðaranum í myndasafninu). Fyrir hreyfimyndina þarf að taka fram hvort óskað er eftir íslensku útgáfunni (9Mb), ensku (9Mb) eða báðum (17Mb), sama verð fyrir allar. Við sendum síðan myndina/myndirnar eða hreyfimyndina til þín í tölvupósti og reikning á heimilisfangið þitt. Athugið að til að geta móttekið ljósmyndir eða hreyfimyndina í tölvupósti þarf tölvupóstfangið þitt að hafa nægilega stórt geymslurými!

Kennsluhefti verður einnig boðið til sölu hér á vefnum von bráðar.


Unglingar læra um vetni!

Nú í dag lauk tveggja vikna námskeiði um vetnistækni fyrir unglinga á aldrinum 12 til 16 ára. Námskeiðið var hluti af stærra verkefni á vegum Háskóla Íslands sem nefnist Háskóli unga fólksins og miðar að því að gefa ungu fólki innsýn inn í undraveröld þekkingarinnar, eins og segir á heimasíðu verkefnissins www.ung.is. Í boði voru námskeið um allt milli himins og jarðar - allt frá líffræði, lögfræði og læknisfræði til veður-, verk- og vetnisfræða.

Á vetnisnámskeiðinu var fjallað um uppruna vetnis, eðlis- og efnafræðilega eiginleika þess sem og notkunarmöguleika. Nemendur fengu innsýn í orkumál heimsins og framtíðarhorfur í orkumálum. Þá var fjallað um eðli og virkni efnarafala sem krakkarnir fengu sjálfir að vinna með auk þess að framleiða vetni með varmaorku og sólarorku. Einnig var ECTOS verkefnið kynnt og farið í heimsókn í vetnisstöðina, að sjálfsögðu í vetnisstrætó sem vakti auðvitað mikla lukku eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15